Erlent

Græn­lendingar opna nýja alþjóðaflugstöð

Kristján Már Unnarsson skrifar
Nýja flugstöðvarbyggingin í Nuuk.
Nýja flugstöðvarbyggingin í Nuuk. Greenland Airports

Stór áfangi næst í flugvallauppbyggingu Grænlands á mánudag þegar ný alþjóðaflugstöð verður opnuð í höfuðstaðnum Nuuk. Byggingin er um áttaþúsund fermetrar að stærð og er henni ætlað að rúma áttahundruð farþega samtímis, fjögurhundruð brottfararfarþega og fjögurhundruð komufarþega.

„Þetta er stór áfangi, ekki bara fyrir okkur heldur allt Grænland. Við erum meira en stolt og ánægð og hlökkum til að taka á móti fyrstu farþegunum og viðskiptavinunum,“ segir forstjóri flugvallafélags Grænlands, Jens Lauridsen, í fréttatilkynningu.

Byggingin er glæsileg að innan sem utan.Greenland Airports

Með opnun nýju flugstöðvarinnar flyst bæði innanlands- og millilandaflug úr gömlu flugstöðinni. Það þýðir að hér eftir þurfa allir brottfararfarþegar um Nuuk-flugvöll að fara í gegnum vopnaleit sem annars hefur ekki tíðkast í innanlandsflugi á Grænlandi.

Nýja flugstöðin í Nuuk verður mikilvægasta samgöngumiðstöð Grænlendinga, bæði sem aðaltengileiðin til annarra landa og sem tengimiðstöð innanlandsflugsins.Greenland Airports

Stærstu tímamótin verða þó síðar á árinu, eftir fimm mánuði, þann 28. nóvember 2024, þegar nýja flugbrautin verður opnuð í fullri lengd, 2.200 metra löng. Nuuk tekur þá við hlutverki Kangerlussuaq sem aðalflugvöllur Grænlendinga. Þar með verður hægt að hefja beint þotuflug milli langstærsta bæjar Grænlands og umheimsins.

Á þessu tölvugerða myndbandi geta lesendur ímyndað sér hvernig verður að fara um nýju flugstöðina. Áhugavert er að sjá að þar er gert ráð fyrir stórri þotu frá Icelandair:


Tengdar fréttir

Styttist í að Nuuk fái nýjan alþjóðaflugvöll

Flugvallafélag Grænlands, Kalaallit Airports, hefur formlega gefið út opnunardag nýs alþjóðaflugvallar í Nuuk, höfuðstað Grænlands. Stóri dagurinn verður eftir átta mánuði, 28. nóvember 2024. Þetta er fimm árum eftir að flugvallargerðin hófst og meira en árs seinkun frá upphaflegri áætlun.

Grænlendingar opna fyrsta hluta nýs alþjóðaflugvallar

Hluti nýju flugbrautarinnar í Nuuk var opnaður flugumferð í vikunni. Þetta er fyrsti stóri áfanginn sem næst í þeirri miklu flugvallagerð sem Grænlendingar hófu fyrir þremur árum en hún er mesta innviðauppbygging í sögu þessa næsta nágrannalands Íslendinga.

Grænlendingar fagna nýrri Airbus-breiðþotu

Grænlendingar fögnuðu í fyrradag komu nýrrar breiðþotu Air Greenland. Þotan tekur yfir þrjúhundruð farþega í sæti og er dýrasti farkostur sem þessi næsta nágrannaþjóð Íslendinga hefur eignast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×