Sport

Anton fjórði á EM

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Anton Sveinn McKee hafnaði í fjórða sæti á EM.
Anton Sveinn McKee hafnaði í fjórða sæti á EM. Sundsamband Íslands

Enton Sveinn McKee hafnaði í fjórða sæti í 200 metra bringusundi á Evrópumótinu í sundi í dag.

Anton átti besta tímann af þeim semtryggðu sér sæti í úrslitasundinu, en hann synti á 2:10,14 í undanrásunum.

Hann náði ekki að fylgja þeim tíma eftir í úrslitasundinu og kom í mark á tímanum 2:10,28. Búlgaríumarðurinn Lyudomir Epitropov og Svíinn Erik Person komu fyrstir í mark á 2:09,45. Pólverjinn Jan Kalusowski varð þriðji á tímanum 2:10,20.

Anton var því aðeins 0,08 sekúndum frá því að komast á pall.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×