Lífið

Timberlake á­kærður og handtökumyndin birt

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Jessica Biel, eiginkona Timberlake, var ekki með honum þegar hann var handtekinn.
Jessica Biel, eiginkona Timberlake, var ekki með honum þegar hann var handtekinn. Getty/Taylor Hill

Lögregluyfirvöld vestanhafs hafa birt myndina sem tekin var af tónlistarmanninum Justin Timberlake eftir að hann var handtekinn fyrir ölvunarakstur um helgina.

Þá hafa miðlar birt myndskeið þar sem Timberlake sést aka eftir auðri götu rétt áður en hann var stoppaður.

Timberlake við handtökuna.

Samkvæmt lögregluskýrslu var tónlistarmaðurinn stöðvaður eftir að lögregla varð vitni að því þegar hann hunsaði stöðvunarskyldu. Þá virðist akstur Timberlake hafa verið óreglulegur og hann ekki haldið sig á réttri akbraut.

Í skýrslunni eru augu Timberlake sögð hafa borið vitni um ölvun auk þess sem sterka lykt lagði frá vitum hans. Hann er sagður hafa verið óstöðugur, talað hægt og hvorki getað haldið jafnvægi né athygli. 

Stóð hann sig illa í öllum vettvangsprófunum, samkvæmt lögregluskýrslunni.

Timberlake, sem er sagður hafa verið að koma frá American Hotel í Sag Harbor í Hamptons þegar hann var handtekinn, ku hafa neitað að gangast undir blóðprufu þegar á lögreglustöðina var komið. Sagðist hann aðeins hafa fengið sér einn drykk og síðan elt vini sína heim.

Tónlistamaðurinn var ákærður fyrir ölvunarakstur og tvö umferðarlagabrot en sleppt að því loknu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.