Ten Hag: Ekkert leyndarmál að aðrir komu til greina en sá besti var nú þegar í starfinu Ágúst Orri Arnarson skrifar 17. júní 2024 08:01 Erik Ten Hag smellir kossi á FA bikarinn sem gæti vel hafa bjargað starfi hans hjá Manchester United. (AP Photo/Kin Cheung) Erik Ten Hag fékk að halda starfi sínu sem knattspyrnustjóri Manchester United en er meðvitaður um að yfirmenn hans skoðuðu aðra möguleika. Hann segir þá hafa komist að þeirri niðurstöðu að hann væri besta mögulegi maðurinn. „
Það er ólgutímabil að baki hjá okkur, aldrei dauð stund í Manchester,“ sagði Ten Hag í viðtali við hollenska miðilinn Studio Fußball. „Þeir komu allt í einu til mín og sögðu að þeir vildu halda mér. Eins og í öllum félögum litu þeir í kringum sig og nýju eigendurnir tóku sinn tíma. Þetta sögðu þeir mér, það er ekkert leyndarmál að þeir töluðu við fjölda kandídata en niðurstaðan varð að besti mögulegi maðurinn væri nú þegar í starfinu,“ hélt hann svo áfram. Ten Hag fór í sumarfrí til Ibiza eftir sigur Manchester United í FA bikarnum í lokaleik tímabilsins. Stjórnarmenn félagsins flugu til hans og funduðu þar. Starf Ten Hag hefur verið í hættu síðan INEOS, fjárfestingahópur Jim Ratcliffe, gekk frá minnihlutakaupum og tók yfir rekstur félagsins. Samningur hans gildir fram út næsta tímabil, með möguleika á eins árs framlengingu. Viðræður um framlengingu munu eiga sér stað á næstunni.
Enski boltinn Mest lesið Sjáðu Tyson slá Jake Paul á vigtuninni Sport Vinicius Junior klikkaði á víti og Brassarnir misstu af sigri Fótbolti Bætti eigið aldursmet í NBA deildinni um fimm ár Körfubolti „Þessi hópur átti líka skilið smá heppni“ Fótbolti Iniesta kaupir danskt fótboltafélag Fótbolti „Mér sýndist ljósin vera komin og flautan líka“ Körfubolti Kelleher og Ferguson hetjurnar í fyrsta heimasigri Heimis Fótbolti Uppgjörið: Álftanes - Grindavík 90-88 | Andrew Jones hetja heimamanna Körfubolti „Maður er að kaupa notaða bíla og það eru bílasalar að bjóða manni bíla“ Körfubolti Kristófer: Þetta virkaði allavega í kvöld Körfubolti Fleiri fréttir Enn vesen með atvinnuleyfi Rúben Amorim Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Gæti fengið sjö leikja bann fyrir rasisma í garð samherja Fyrrverandi kærasta kærir leikmann Liverpool Sjáðu allt sem Rúben Amorim gerði á móti Man. Utd í Meistaradeildinni Coote dómari í enn verri málum Viðurkennir mistök sem bitnuðu illa á Man Utd í lokaleik Ten Hag Vildi ekki deila Match of the Day með konu og hafnaði tilboði BBC Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Bruno til bjargar Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Ödegaard strax aftur heim Lampard sótti um starfið hjá Coventry Liverpool langlíklegast til að verða meistari samkvæmt ofurtölvunni Hareide segir Ødegaard milli steins og sleggju Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote Lineker hættir með Match of the Day eftir tímabilið Nkunku til sölu þrátt fyrir að vera markahæstur Nistelrooy yfirgefur Man United með tilkomu Amorim Fékk símtal frá Arteta en bætti Ödegaard í hópinn Myndband sýnir dómara urða yfir Liverpool og kalla Klopp kuntu Fundað um framtíð Guardiola í vikunni Amorim getur ekki byrjað alveg strax í nýju vinnunni Arteta svekktur eftir jafntefli á Brúnni: „Snýst um að vinna“ „Frammistaðan var góð“ Nistelrooy þakklátur en veit ekki hvað tekur nú við Jafntefli sem gerir lítið fyrir bæði lið Nýliðarnir sóttu þrjú stig til Tottenham og Newcastle skellti Forest United menn á allt öðrum og betri stað eftir inngrip Van Nistelrooy Liverpool hefur áhyggjur af meiðslunum hjá Trent Sjá meira