Innlent

Þrjár íkveikjur í sinu með jöfnu milli­bili

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Talið er að um íkveikjur hafi verið að ræða.
Talið er að um íkveikjur hafi verið að ræða. Aðsend

Eldur var í sinu á þremur stöðum við vegkant á Vesturlandi, í nágrenni við Brúarfoss og Fíflholt á Mýrum. Slökkvilið frá Borgarnesi brást við kallinu og slökkti eldinn greiðlega en að öllum líkindum var um íkveikju að ræða. Eldarnir voru með nánast nákvæmlega kílómeters millibili.

Heiðar Örn Jónsson, slökkviliðsstjóri í Borgarnesi, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. Hann segir allar líkur á því að óprúttinn aðili hafi kveikt þessa elda snemma í morgunsárið. Eldarnir voru kveiktir um sjöleytið í morgun.

Fréttastofu barst þetta myndefni af eldunum í dag.

Klippa: Íkveikjur við Brúarfoss

„Við fáum útkall sirka tíu mínútur yfir sjö í morgun og förum þarna með tiltækt lið frá Borgarnesi. Við fórum einhverjir tíu í þetta verkefni. Þetta var ekki stórt og mikið og tók skamman tíma að slökkva,“ segir Heiðar og bætir við að ekkert tjón hafi orðið nema á sinunni.

Klippa: Slökkvilið í útkalli vegna sinuelds

Hann biðlar einnig til fólks að kveikja ekki sinuelda.

„Við værum mjög þakklátir ef fólk myndi gera eitthvað annað en þetta. Það væri rosa fínt,“ segir Heiðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×