Lífið

Elli og María Birta eru stoltir fóstur­for­eldrar í Las Vegas

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Elli er nýjasti viðmælandi í  hlaðvarpsþættinum Tölum um hjá Gumma kíró.
Elli er nýjasti viðmælandi í  hlaðvarpsþættinum Tölum um hjá Gumma kíró.

„Þetta er eitthvað sem voðalega fáir vita, eiginlega enginn,“ segir listamaðurinn Elli Egilsson. Hann og eiginkona hans María Birta Bjarnadóttir Fox hafa tekið börn að sér í tímabundið fóstur síðastliðin þrjú ár. Hjónin eru búsett í Las Vegas í Bandaríkjunum ásamt dóttur þeirra Ingaciu sem verður þriggja ára í september.

Í hlaðvarpsþættinum Tölum um, sem er í umsjón kírópraktorsins Guðmundar Birkis Pálmasonar, ræðir Elli meðal annars um foreldrahlutverkið, listina og lífið í Las Vegas.

„Við erum stoltir fósturforeldrar og tökum að okkur börn sem vantar heimili. Það er oftast bara í stuttan tíma. Við byrjuðum á þessu þegar við fluttum til Las Vegas,“ segir Elli en hjónin hafa lítið viljað tjá sig opinberlega um foreldrahlutverkið fyrr en nú.

Elli segir að Maríu hafi dreymt um að ættleiða og hjálpa börnum frá því hún var barn.

„Í Las Vegas kynntist hún yfirmanni sínum sem vissi allt um ættleiðingarkerfið. Þetta er eitthvað sem maður heyrir ekki mikið um sérstaklega ekki á Íslandi. Það er svo mikið af börnum sem vantar hjálp. Við erum með opið heimili fyrir börn, sérstaklega lítil börn,“ segi Elli.

Ein stór fjölskylda

„Við fengum fyrstu fósturdóttur okkar þegar hún var þriggja daga gömul. Við þurftum að vera með henni uppi á spítala í tíu daga í alls konar rannsóknum, allt í góðu, og svo við fórum með hana heim og var hjá okkur þangað til hún var sjö mánaða,“ segir Elli.

Móður stúlkunnar bárust fregnir af góðri umönnun Ella og Maríu og hafði í kjölfarið samband við þau.

„Í flestum svona tilfellum heyrum við ekki aftur frá börnunum. En þær búa rétt hjá okkur. Anaja er þriggja og hálfs árs gömul og kallar mig ennþá pabba og Maríu mömmu, við erum bara ein stór fjölskylda. Þær eyða oft jólunum með okkur og páskunum,“ segir Elli.

Þáttinn má heyra í heild sinni hér að neðan:


Tengdar fréttir

María Birta og Elli tóku upp nýtt eftirnafn

Listahjónin María Birta og Elli Egilsson ákvaðu að taka upp nýtt eftirnafn eftir að þau fengu bandarískan ríkisborgararétt og bera nú nafnið Fox. Ástæðan var til að tengja fjölskylduna saman, en hjónin og dóttir þeirra Ingacia báru öll sitt hvort eftirnafnið.

Örlagarík skilaboð: „Besta ákvörðun lífs míns“

Leikkonan María Birta Bjarnadóttir tók örlagaríku ákvörðun fyrir tíu árum þegar hún lagði inn pöntun fyrir málverki hjá listamanninum Ella Egilssyni. Í dag eru þau búsett í Los Angeles í Bandaríkjunum, gift og eiga eina dóttur, Ignaciu, tveggja ára.

„Maðurinn minn er besti pabbinn í öllum heiminum!“

„Það er alveg ofboðslega margt spennandi framundan, en því miður ekkert sem ég get talað um að svo stöddu,“ segir leyndardómsfull María Birta Bjarnadóttir aðspurð um framtíðarplön í viðtali við Makamál. 

María Birta hefur þurft að fara á spítala eftir leiksýningar

Leikkonan María Birta Bjarnadóttir hefur búið undanfarin ár í Bandaríkjunum þar sem hún hefur verið að reyna fyrir sér í leiklistinni. Sem stendur er hún búsett í Las Vegas og tekur þátt í sýningu þar í borg tíu sinnum í viku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.