Erlent

Segjast hafa skotið á flugmóðurskip eftir loft­á­rásir

Samúel Karl Ólason skrifar
F/A-18 Super Hornet herþotu flogið af bandarísku flugmóðurskipi. Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti.
F/A-18 Super Hornet herþotu flogið af bandarísku flugmóðurskipi. Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti. Sjóher Bandaríkjanna/Richard L.J. Gourley

Bandarískir og breskir hermenn gerðu loftárásir gegn Hútum í Jemen í nótt. Forsvarsmenn Húta segja sextán hafa fallið í árásunum og 42 hafa særst en í kjölfarið segjast Hútar hafa gert árás á bandaríska flugmóðurskipið USS Dwight D. Eisenhower.

Árásirnar hófust í gærkvöldi og segja heimildarmenn AP fréttaveitunnar að þær hafi beinst að neðanjarðarbyrgjum Húta, skotpöllum fyrir eldflaugar, stjórnstöðvar, minnst einu skipi eða bát og öðrum skotmörkum.

Í heildina voru sex árásir gerðar, samkvæmt Hútum. Þeir halda því fram að eingöngu óbreyttir borgarar hafi fallið í árásunum. Hernaðaryfirvöld í Bandaríkjunum segja árásir hafa verið gerðar á þrettán skotmörk.

Meðal annars var notast við F/A-18 herþotur frá Eisenhower til árásarinnar og Typhoon FGR4 þotur frá Bretlandi en önnur herskip komu einnig að þeim. Hútar sögðust í morgun hafa skotið eldflaugum og drónum að flugmóðurskipinu en það hefur ekki verið staðfest. Heimildarmenn AP segja ekkert ama að flugmóðurskipinu.

Bretar og Bandaríkjamenn, og þá sérstaklega þeir síðarnefndu, hafa gert fjölmargar árásir gegn Hútum. Þær hófust eftir að Hútar byrjuðu að gera árásir á flutningaskip sem verið var að sigla um Rauðahaf og Adenflóa.

Hópurinn stjórnar Sanaa, höfuðborg Jemen, og stórum hlutum landsins í norðri og vestri. Átökin hafa leitt til hrikalegs mannúðarástands í Jemen, þar sem fátækt er mikil. Hungursneyð og smitsóttir hafa leikið í íbúa landsins grátt.

Til að komast inn í Rauðahaf úr suðri og þaðan gegnum Súesskurðinn inn á Miðjarðarhafið þarf að sigla skipum um Aden-flóa og Bab al-Mandab-sund. Skipin fara því mjög nærri ströndum Jemen og yfirráðasvæði Húta. Á undanförnum mánuðum hafa Hútar skotið eldflaugum og flogið sjálfsprengidrónum að flutningaskipum og herskipum.

Hútar stjórna meðal annars borginni Sanaa í Jemen.AP/Osamah Abdulrahman

Í heildina hafa Hútar gert árásir á rúmlega fimmtíu skip. Þrír sjóliðar hafa fallið í þessum árásum og eitt skip hefur sokkið. Þá hafa hútar tekið eitt skip yfir. Nú í vikunni gerðu Hútar árás á skip sem notað var til að flytja korn til Íran en það eru helstu bakhjarlar Húta.

Sjá einnig: Fyrstu mannslátin vegna árása Húta á Rauðahafi

Íranar hafa útvegað Hútum eldflaugar og dróna fyrir árásirnar og eru einnig sagðir hafa hjálpað Hútum að finna og velja skotmörk.

Hútar héldu því fram á miðvikudaginn að þeir hefðu skotið niður MQ-9 Reaper dróna með flugskeyti. AP segir mögulegt að sá hafi verið í eigu Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA) en útlit er fyrir að Bandaríkjamenn hafi tapað þremur slíkum drónum yfir Jemen í þessum mánuði.


Tengdar fréttir

Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran

Ráðamenn í Ísrael ætluðu sér að gera mun umfangsmeiri árásir á Íran en þeir ákváðu svo á endanum að gera. Pólitískur þrýstingur frá Joe Biden og nokkrum ráðamönnum í Evrópu er sagður hafa átt stóran þátt í því að þess í stað gerðu Ísraelar minni árás sem klerkastjórn Íran gat sleppt að svara með frekari árásum.

Íranskir sérsveitarmenn tóku stjórn á flutningaskipi

Hermenn frá Byltingarvörðum Írans tóku í morgun stjórn á flutningaskipi nærri Hormuz-sundi. Skipinu var í kjölfarið siglt inn í landhelgi Írans en skipið er sagt tengjast Ísrael, þó því sé siglt undir fána Portúgal.

Skip sökk eftir loftárás Húta

Flutningaskipið Rubymar sökk í Rauðahafinu í gærkvöldi eftir loftárás Húta í Jemen. Skipið er það fyrsta til þess að sökkva vegna aðgerða Húta í tengslum við stríðið á Gasa. 

Búa sig undir langvarandi aðgerðir gegn Hútum

Meðlimir ríkisstjórnar Joe Biden, forseta Bandaríkjanan, eru að undirbúa áætlanir fyrir mögulegar langvarandi hernaðaraðgerðir gegn Hútum í Jemen. Markmið Bandaríkjamanna er að stöðva árásir Húta á fraktskip sem verið er að sigla um Rauða hafið og gegnum Súesskurðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×