Skoðun

Sund og Halla Hrund

Valdimar Tr. Hafstein skrifar

Sundlaugarnar eru staður þar sem ókunnugir hittast, þar sem leiðir fólks liggja saman, þar sem óvinir geta ekki forðast hver annan. Þar kemur saman fólkið úr hverfinu, þorpinu, sveitinni, fólk á öllum aldri með margs konar bakgrunn, ýmis konar holningu og alls konar sýn á lífið. Fjórir af hverjum fimm fullorðnum Íslendingum fara í sund. Sundlaugarnar eru staðir þar sem samfélagið birtist sjálfu sér—fyrst berrassað, svo í sundfötum.

Þessi íslenska sundmenning er sérstök og í henni kristallast margt sem er gott við okkar opna og lýðræðislega samfélag en hún er líka til marks um hvað við erum rík af auðlindum. Forsendan fyrir öllum þessum sundlaugum er auðvitað heita vatnið. Við göngum nánast að því sem gefnu en mikilvægustu almannagæðin á Íslandi eru fólgin í jarðhitanum. Þegar heitt vatn fannst í Skutulsfirði um síðustu helgi sagði bæjarstjórinn á Ísafirði réttilega að það væri eins og að finna gull. Við treystum á að ofnarnir hiti heimilið og að heitt vatn renni úr krönum þegar við skrúfum frá. Satt að segja er erfitt að ímynda sér lífið hér á landi án þess. Sundið er kannski skýrasta og sýnilegasta birtingarmynd almannagæða – auðlinda í almannaeigu.

Það er ekki sjálfgefið að auðlindir séu almannagæði: vatnið, jarðhitinn, orkan – eða sundlaugar. Þannig er það ekki alls staðar. Við búum að fyrirhyggju og samtakamætti fyrri kynslóða, en það er ekki of seint að klúðra þessu. Það hljómar kannski skringilega, en það er vilji til þess á háum stöðum að klúðra þessu. Það hefur þegar gerst í einum landshluta því Orkuveita Suðurnesja var einkavædd og arðurinn af henni fluttur úr landi. Þá hefur forsætisráðherra lýst vilja til að skoða sölu á Landsvirkjun og dómsmálaráðherra hefur talað fyrir sölunni. Viðskiptaráð, stærsti þrýstihópur landsins í eigu helstu fyrirtækja þess, lagði til við ríkisstjórnina fyrir tveimur mánuðum síðan að Landsvirkjun, Orkuveita Reykjavíkur og Orkubú Vestfjarða verði öll einkavædd.

Þess vegna hef ég hrifist af þeirri áherslu sem Halla Hrund leggur á auðlindirnar okkar í sínu forsetaframboði. Hún talar af mikilli þekkingu en líka af miklum kærleika um þessar undirstöður velferðar í landinu og hún hefur heitið því að sem forseti standi hún vörð um þjóðarauðlindirnar: orkuna, vatnið, fiskimiðin, firðina og náttúruna. Þetta er tímabær og brýn áhersla. Ef Halla Hrund sæti á Bessastöðum myndu stjórnmálamenn hugsa sig tvisvar um áður en þeir leyfðu fjárfestum að sölsa undir sig sameiginlegar auðlindir, vitandi að forsetinn myndi skjóta málinu til þjóðarinnar. Í atkvæðagreiðslunni sem tæki við myndi forseti Íslands tala fyrir langtímahagsmunum og almannahag. Þannig forseta vil ég. Þess vegna kýs ég Höllu Hrund núna á laugardaginn – þegar ég er búinn í sundi.

Höfundur er þjóðfræðingur og áhugamaður um sund og auðlindir í þjóðareigu.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×