Skoðun

Kjósum Baldur fyrir unga fólkið

Brynja Kristín Guðmundsdóttir skrifar

Fyrir ári missti ég son minn í sjálfsvígi, hann var 17 ára gamall. Hann var skemmtilegur, opinn og snerti mörg hjörtu með sínu frjálslega fasi en glímdi við ákveðnar áskoranir. Mörg voru hjálpleg, gripu hann á hinum ýmsu stöðum og gerðu meira en þau þurftu. Þrátt fyrir það var skrefið úr grunnskóla yfir í framhaldsskóla mjög stórt.

Mörg ungmenni týnast þegar á framhaldsskólastigið er komið. Framboð íþrótta og tómstunda er minna en þegar þau voru yngri og það er ekki sjálfsagt að þau fái sumarvinnu. Það getur leitt af sér að þau einangrast og vanlíðan eykst. Kerfið er þungt og þegar þau nálgast 18 ára sjálfræðisaldurinn þá eru sum engan veginn tilbúin til að vera flokkuð með fullorðnum og þurfa að leita eftir og nýta þá þjónustu sem fullorðnum ber að nota.

Það er mér fátt ofar í huga en velferð og líðan ungmenna og þess vegna ætla ég að kjósa Baldur Þórhallsson í komandi forsetakosningum. Hann er með skýra sýn á hvernig hann mun nýta forsetaembættið í þágu ungs fólks og líðan þeirra verði hann kosinn. Það er staðreynd að mörgum börnum og ungmennum líður ekki vel. Það er sárt að sjá að mörg glíma við geðraskanir, vanlíðan eða verða útundan á einhvern hátt. Þegar þannig er fá þau ekki tækifæri til að njóta sín heldur verða ein og einangruð.

Ég tel að liður í því að koma þessum hópi til hjálpar sé að leiða marga sem koma að málefnum barna og ungmenna saman. Skólar, framhaldsskólar, ríki, sveitafélög, íþrótta- og tómstundafélög, heilbrigðiskerfið, sálfræðingar og fleiri þurfa að taka höndum saman og gera miklu meira fyrir þennan hóp en hefur verið gert. Ég hef þekkt til Baldurs frá því ég var unglingur og ég veit að hann er maður verka og sátta. Þar má nefna að hann fór fyrir samtökunum´78 til að leita sátta við kirkjuna en þar á milli hafði verið gjá svo áratugum skipti. Hann hefur sjálfur staðið í mannréttindabaráttu í yfir 30 ár og ætlar sér að standa með þeim sem hallað er á í samfélaginu. Ég treysti Baldri fyrir þessu mikilvæga verkefni og veit að hann með Felix sér við hlið mun lyfta upp umræðunni um líðan barna og unglinga. Þeir þora að tala um það sem margir bara hugsa og munu ná árangri í því mikilvæga verkefni sem líðan barna og ungmenna er. Kjósum Baldur fyrir unga fólkið!

Höfundur er innilegur stuðningsaðili Baldur Þórhallssonar.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×