Valsmenn hafa unnið alla deildarleiki sína við HK frá hruni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. maí 2024 15:01 Leifur Andri Leifsson og félagar í HK hefur gengið afar illa í leikjum sínum við Valsmenn undanfarin ár. Vísir/Hulda Margrét 17. ágúst 2008. Það er í síðasta skiptið sem HK náði í stig á móti Valsmönnum í efstu deild karla í fótbolta. HK-ingar reyna að breyta því í kvöld. HK tekur á móti Val í Kórnum en þessi leikur liðanna er í sjöundu umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Leikurinn hefst klukkan 19.15 og verður sýndur beint á Bestu deildar stöðinni. HK liðið hefur unnið Íslandsmeistara Víkings og KR í síðustu tveimur leikjum sínum, sem voru jafnframt fyrstu sigurleikir Kópavogsliðsins á leiktíðinni. HK-ingar mæta því á sigurbraut í leik á móti sínum erfiðustu mótherjum ef marka má úrslitin undanfarin fimmtán ár. Síðustu átta leikir Vals og HK í efstu deild: 2023: Valur-HK 4-1 2023: HK-Valur 0-5 2021: HK-Valur 0-3 2021: Valur-HK 3-2 2020: Valur-HK 1-0 2020: HK-Valur 0-4 2019: Valur-HK 2-0 2019: HK-Valur 1-2 Valsmenn hafa unnið síðustu átta leiki sína á móti HK í efstu deild eða alla leiki liðanna frá og með 2009 tímabilinu. Markatalan í þessum átta leikjum er 24-4, Val í vil. Allir leikirnir hafa verið síðan að HK komst aftur í deild þeirra bestu eftir ellefu ára fjarveru sumarið 2019. HK vann 1-0 sigur á Val á Hlíðarenda í ágúst 2008 en hefur ekki fengið stig á móti Hlíðarendaliðinu eftir það. Almir Cosic skoraði eina mark HK í þeim leik. HK hafði einnig unnið fyrri leik liðanna sumarið 2008, þegar liðið vann 4-2 sigur í júní í leik sem fór fram á Kópavogsvellinum sem þá var heimavöllur HK. Daninn Iddi Alkhag skoraði þrennu í þeim leik. Þetta eru einu stig HK í tólf innbyrðis leikjum Vals og HK í efstu deild karla í fótbolta. Valsmenn unnu báða leiki liðanna í fyrra með samtals markatölunni 9-1, fyrst 5-0 í Kórnum og svo 4-1 á Hlíðarenda. Besta deild karla Valur HK Mest lesið Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Enski boltinn Sigurlíkur Liverpool minnkuðu Fótbolti Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Enski boltinn Hætti við að dæma víti og United slapp með jafntefli Enski boltinn Bitlausu liði Arsenal mistókst að minnka forskot Liverpool Enski boltinn „Ég lét þetta ekki brjóta mig niður og hafa áhrif á mig“ Fótbolti Gaf unnustu sinni vænt olnbogaskot í leik Fótbolti Áhugi Íslendinga heillaði: Ísak hafnaði Noregi til að herma eftir afa Handbolti Tók vítið í leyfisleysi og var skipt út af þótt hann hefði skorað Fótbolti Í beinni: Valur - Slavía Prag | Fyrri leikur tvíhöfðans í átta liða úrslitum Handbolti Fleiri fréttir Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Faðir Gylfa Þórs segir Börk hafa gert samkomulag við sig „Kemur pabba mínum ekki við hvar ég spila fótbolta“ Nýr lögfræðingur KSÍ á yfir fjögur hundruð leiki í meistaraflokki Umdeild frammistaða Gylfa í kveðjuleiknum Samskiptin furðuleg og fólk tengt Gylfa við stýrið Erlendir miðlar fjalla um skipti Gylfa Þórs: Verður samherji Gunnars Vatnhamar Skagamenn horfa áfram til yngri leikmanna Gylfi má ekki spila með Víkingi í Sambandsdeildinni Freyr vill Höskuld en Blikar sögðu nei Víkingur staðfestir komu Gylfa Stjórn Vals segir Gylfa hafa sýnt liðsfélögunum vanvirðingu Gylfi hefur náð samkomulagi við Víking Nýi markvörðurinn hjá KA sleit hásin Valur samþykkti tilboð í Gylfa Birkir Jakob snýr heim frá Ítalíu og semur við Val Staðfestir brottför Danijels sem spilar ekki á fimmtudag Vestri fær bakvörð frá Svíþjóð KR lánar Óðinn til ÍR Sjáðu fimm marka flengingu frá meisturunum Gylfi fyrirliði í jafntefli á Akranesi Víkingar með lægra tilboð en „grín“ í Gylfa Sjá meira
HK tekur á móti Val í Kórnum en þessi leikur liðanna er í sjöundu umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Leikurinn hefst klukkan 19.15 og verður sýndur beint á Bestu deildar stöðinni. HK liðið hefur unnið Íslandsmeistara Víkings og KR í síðustu tveimur leikjum sínum, sem voru jafnframt fyrstu sigurleikir Kópavogsliðsins á leiktíðinni. HK-ingar mæta því á sigurbraut í leik á móti sínum erfiðustu mótherjum ef marka má úrslitin undanfarin fimmtán ár. Síðustu átta leikir Vals og HK í efstu deild: 2023: Valur-HK 4-1 2023: HK-Valur 0-5 2021: HK-Valur 0-3 2021: Valur-HK 3-2 2020: Valur-HK 1-0 2020: HK-Valur 0-4 2019: Valur-HK 2-0 2019: HK-Valur 1-2 Valsmenn hafa unnið síðustu átta leiki sína á móti HK í efstu deild eða alla leiki liðanna frá og með 2009 tímabilinu. Markatalan í þessum átta leikjum er 24-4, Val í vil. Allir leikirnir hafa verið síðan að HK komst aftur í deild þeirra bestu eftir ellefu ára fjarveru sumarið 2019. HK vann 1-0 sigur á Val á Hlíðarenda í ágúst 2008 en hefur ekki fengið stig á móti Hlíðarendaliðinu eftir það. Almir Cosic skoraði eina mark HK í þeim leik. HK hafði einnig unnið fyrri leik liðanna sumarið 2008, þegar liðið vann 4-2 sigur í júní í leik sem fór fram á Kópavogsvellinum sem þá var heimavöllur HK. Daninn Iddi Alkhag skoraði þrennu í þeim leik. Þetta eru einu stig HK í tólf innbyrðis leikjum Vals og HK í efstu deild karla í fótbolta. Valsmenn unnu báða leiki liðanna í fyrra með samtals markatölunni 9-1, fyrst 5-0 í Kórnum og svo 4-1 á Hlíðarenda.
Síðustu átta leikir Vals og HK í efstu deild: 2023: Valur-HK 4-1 2023: HK-Valur 0-5 2021: HK-Valur 0-3 2021: Valur-HK 3-2 2020: Valur-HK 1-0 2020: HK-Valur 0-4 2019: Valur-HK 2-0 2019: HK-Valur 1-2
Besta deild karla Valur HK Mest lesið Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Enski boltinn Sigurlíkur Liverpool minnkuðu Fótbolti Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Enski boltinn Hætti við að dæma víti og United slapp með jafntefli Enski boltinn Bitlausu liði Arsenal mistókst að minnka forskot Liverpool Enski boltinn „Ég lét þetta ekki brjóta mig niður og hafa áhrif á mig“ Fótbolti Gaf unnustu sinni vænt olnbogaskot í leik Fótbolti Áhugi Íslendinga heillaði: Ísak hafnaði Noregi til að herma eftir afa Handbolti Tók vítið í leyfisleysi og var skipt út af þótt hann hefði skorað Fótbolti Í beinni: Valur - Slavía Prag | Fyrri leikur tvíhöfðans í átta liða úrslitum Handbolti Fleiri fréttir Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Faðir Gylfa Þórs segir Börk hafa gert samkomulag við sig „Kemur pabba mínum ekki við hvar ég spila fótbolta“ Nýr lögfræðingur KSÍ á yfir fjögur hundruð leiki í meistaraflokki Umdeild frammistaða Gylfa í kveðjuleiknum Samskiptin furðuleg og fólk tengt Gylfa við stýrið Erlendir miðlar fjalla um skipti Gylfa Þórs: Verður samherji Gunnars Vatnhamar Skagamenn horfa áfram til yngri leikmanna Gylfi má ekki spila með Víkingi í Sambandsdeildinni Freyr vill Höskuld en Blikar sögðu nei Víkingur staðfestir komu Gylfa Stjórn Vals segir Gylfa hafa sýnt liðsfélögunum vanvirðingu Gylfi hefur náð samkomulagi við Víking Nýi markvörðurinn hjá KA sleit hásin Valur samþykkti tilboð í Gylfa Birkir Jakob snýr heim frá Ítalíu og semur við Val Staðfestir brottför Danijels sem spilar ekki á fimmtudag Vestri fær bakvörð frá Svíþjóð KR lánar Óðinn til ÍR Sjáðu fimm marka flengingu frá meisturunum Gylfi fyrirliði í jafntefli á Akranesi Víkingar með lægra tilboð en „grín“ í Gylfa Sjá meira