Arteta segir að Gabriel Jesus sé ekki á förum í sumar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. maí 2024 10:02 Gabriel Jesus spilar að öllum líkindum áfram með Arsenal. Vísir/Getty Gabriel Jesus verður áfram leikmaður Arsenal á næsta tímabil ef marka má orð knattspyrnustjórann Mikel Arteta.
Arteta ræddi framtíð brasilíska framherjans á blaðamannafundi fyrir leik liðsins á móti Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni en leikurinn hefst nú í hádeginu. Fréttir bárust af því fyrr í vikunni að Arsenal væri tilbúið að hlusta á tilboð í þennan 27 ára leikmann en Jesus á þrjú ár eftir af samning sínum við félagið. 🔴⚪️🇧🇷 Arteta: “I don’t know where reports about Gabriel Jesus exit are coming from”.“We have NO intention of letting Gabriel leave”. pic.twitter.com/3Vtoc09QgO— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) May 3, 2024 Jesus hefur skorað 8 mörk í 33 leikjum í öllum keppnum á þessari leiktíð. Hann hefur hins vegar glímt við hnémeiðsli og fór í aðgerð í janúar. Hann talaði um það í síðasta mánuði að hann myndi ekki hvenær hann spilaði fótbolta síðast verkjalaus. Kai Havertz hefur eignað sér framherjastöðuna í fjarveru Gabriel Jesus en það þýðir ekki að Arteta vilji ekki halda Brassanum. „Ég veit ekki hvaðan þessar fréttir eru að koma. Það eru engin plön um það að leyfa honum að fara,“ sagði Mikel Arteta. ESPN segir frá. „Ég myndi elska það að halda honum. Hann veit það. Félagið styður þetta líka. Hann er mikilvægur leikmaður fyrir okkur, bæði innan sem utan vallar. Hann gerir okkur betri og við viljum halda honum,“ sagði Arteta.
Enski boltinn Mest lesið Klippti hálft landsliðið eftir beiðni Viktors: „Ég fékk svona 70 skilaboð“ Handbolti Í beinni: Króatía - Ísland | Ögurstund gegn köppum Dags Handbolti Gætið ykkar: Maðurinn sem vildi stýra Íslandi með Snorra Handbolti Sjáðu afmælisbarn og fleiri hressa Íslendinga hita upp í Zagreb Handbolti Bjarki úr leik og Stiven kallaður til Handbolti HM í dag: Sérstakur gestur og sögulegar sættir Handbolti „Fór langt á harða gæjanum og hrokanum“ Handbolti Býr sig undir að mæta morðingjum í kvöld Handbolti Kastaði sýru í andlit Wissa og reyndi að stela barninu Enski boltinn Strákarnir fá veiðiferð í verðlaun ef þeir komast áfram Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu skrýtna sjálfsmarkið og sigurmark Fernandes Kastaði sýru í andlit Wissa og reyndi að stela barninu Óhófleg eyðsla Rauðu djöflanna undanfarin ár að koma í bakið á þeim Haaland fær tíu milljarða hjálp Sér eftir því sem hann sagði Cole Palmer er stolt lítillar þjóðar í Karabíska hafinu Táningur handtekinn vegna ummæla í garð Havertz og eiginkonu hans Tók brjálæðiskast í klefanum hjá Man. Utd Chelsea að gera Naomi Girma að dýrasta leikmanni sögunnar Jón Daði skoraði í fyrsta sigurleik Burton á árinu Grealish eftirsóttur: Færir hann sig um set í Manchester? Meistarar City halda áfram að bæta við sig „Of snemmt að kalla Liverpool besta lið í heimi“ Spilar ekki á meðan glugginn er opinn Petit baðst afsökunar á að „drepa“ Pat Rice „Ég myndi deyja fyrir Liverpool“ Englandsmeistararnir festa kaup á Khusanov Varnarmennirnir björguðu Chelsea Fowler með sína kenningu um þá samningslausu hjá Liverpool Rotta hljóp um á grasinu á Old Trafford í miðjum leik Áttundi sigur Forest í síðustu níu leikjum Yfirlýsing frá City með stórsigri Onana með skelfileg mistök þegar United tapaði enn og aftur fyrir Brighton Draumaendurkoma hjá Moyes á Goodison Park Fyrrverandi landsliðsmaður Englands mætir KSI í boxbardaga Segir Liverpool besta lið heims Antony á leið til Betis Ollie Watkins gerði Arsenal skráveifu Núnez með tvö mörk í uppbótartíma Kluivert með þrennu í fyrsta leik dagsins Sjá meira