Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV Kjartan Kjartansson skrifar 2. maí 2024 21:54 Dagur B. Eggertsson (t.v.), formaður borgarráðs, og Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðismanna í borginni. Vísir/Vilhelm Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík segir ýmsa telja óþægileg hagsmunatengsl á milli Reykjavíkurborgar og Ríkisútvarpsins í tengslum við umdeildan samning við olíufélögin. Formaður borgarráðs segist klóra sér í höfðinu yfir fyrirspurninni.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram tillögu í borgarráði í dag um að fela innri endurskoðun borgarinnar að gera úttekt á aðdraganda og fyrirkomulagi samningaviðræðna Reykjavíkurborgar við rekstraraðila og lóðahafa eldsneytisstöðva og samninga sem voru gerðir í kjölfarið. Tilgangurinn sé að meta hvort málefnaleg sjónarmið hafi legið að baki samningunum og hvort hagsmunir borgarinnar hafi verið nægilega tryggðir. Borgin lauk samningum við öll olíufélögin um fækkun bensínstöðva í íbúahverfum árið 2022. Í stað bensínstöðvanna eiga að rísa íbúðir og atvinnuhúsnæði. Samningarnir voru hluti af loftslagsáætlun borgaryfirvalda. Stefna þeirra er að fækka bensínstöðvum um helming fyrir árið 2030. Hildur Björnsdóttir, oddviti sjálfstæðismanna, segir í samtali við Vísi að flokkur hennar hafi gert alvarlegar athugasemdir við samningana um margra ára skeið. Óskað hafi verið eftir úttekt á þeim á síðasta kjörtímabili en tillögunni verið vísað frá. „Nú erum við komin með nýjan meirihluta og þá væri óskandi að nýtt fólk sjái ástæðu til þess að fara ofan í saumana á þessu og sjá hvort þarna hafi verið eðlileg sjónarmið og eðlilegir hagsmunir sem hafi legið til grundvallar,“ segir Hildur. Eðlilegt að draga sambandið fram í sviðsljósið Á sama fundi borgarráðs í dag óskuðu sjálfstæðismenn eftir upplýsingum um „hvers kyns samningssamband, viðskiptahagsmuni eða aðra fjárhagslega hagsmuni“ sem liggi eða hafi legið á milli Reykjavíkurborgar og Ríkisútvarpsins. Hildur staðfestir að fyrirspurnin tengist nýlegum fréttum af því að ritstjórn fréttaskýringarþáttarins Kveiks hafi ákveðið að birta ekki umfjöllun Maríu Sigrúnar Hilmarsdóttur, fréttamanns, sem hefur verið sögð snúast um samninga borgarinnar við olíufélögin. María Sigrún hefur lýst óánægju með að umfjöllunin hafi ekki verið birt. Hún er ekki lengur hluti af ritstjórn Kveiks. Fréttastjóri RÚV sagði engin annarleg sjónarmið að baki ákvörðuninnar um að birta ekki umfjöllun hennar. Spurð að því hvaða tilefni sjálfstæðismenn hafi til þess að spyrja út í möguleg hagsmunatengsl borgarinnar og Ríkisútvarpsins segir Hildur að öll kurl séu augljóslega ekki komin til grafar ennþá. „Það eru ýmsir sem telja að það geti verið einhver óþægileg hagsmunatengsl þarna á milli og ég tel að það sé margt sem á eftir að fara nánar ofan í saumana á hvað varðar þessa samninga og sambandið þarna á milli og þá er bara eðlilegt að draga það fram í sviðsljósið. Við getum þá bara tekið afstöðu til þess þegar það er fram komið,“ segir Hildur. Sjálfstæðismenn vilja vita hvort borgin og RÚV eigi í hagsmunasambandi sem kunni að hafa haft áhrif á umfjöllun um samninginn við olíufélögin.Vísir/Vilhelm Klórar sér í höfðinu yfir fyrirspurninni Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs og borgarstjóri þegar samningarnir við olíufélögin voru gerðir, segist hvorki hafa séð tillögu sjálfstæðismanna um úttekt á samningunum né fyrirspurnina um möguleg hagsmunatengsl við RÚV. Bæði tillagan og fyrirspurnin hafi verið lögð fram án kynningar. „Ég bara klóra mér í höfðinu og það er líklega best að Sjálfstæðisflokkurinn svari til um þetta,“ segir Dagur í samtali við Vísi. Eini samningurinn sem Dagur man eftir milli borgarinnar og RÚV fyrir utan þann sem var gerður um þróun lóðar þess í Efstaleiti fjalli um Krakka-RÚV og starfsnám grunnskólanema. Upplýsingum sé þó safnað fyrir allar fyrirspurnir og þeim svarað samviskusamlega. Sjálfstæðisflokkurinn hafi áður lagt fram fyrirspurnir um samninga borgarinnar við RÚV um Krakka-RÚV. Bensínstöð N1 við Ægisíðu er á meðal þeirra sem víkja fyrir nýrri byggð sem borgaryfirvöld sóttust eftir.Vísir/Arnar Fráleitt að olíufélögin sleppi við milljarðagjöld Tillögu sjálfstæðismanna um úttekt á samningunum við olíufélögin var frestað á fundi borgarráðs í dag. Dagur segir það vanalegt þegar tillögur eru lagðar fram án kynningar með fyrirvara. Þær séu þá teknar fyrir á næsta fundi ráðsins. Það sama verði upp á teningnum með þessa tillögu. Samningarnir við olíufélögin hafi verið gerðir á grundvelli aðferðafræði sem allir flokkar í borgarstjórn, þar á meðal Sjálfstæðisflokkurinn, samþykktu á sínum tíma. Hún byggði meðal annars að því að leggja fram hvata til þess að borgin næði markmiði sínu um fækkun bensínstöðva sem henni hafði reynst torsótt lengi. Hvatarnir fólust meðal annars í því að borgin legði ekki á ákveðin viðbótargjöld ef olíufélögin legðu fram tillögur um uppbyggingu sem borginni hugnaðist innan tveggja ára frá því að samningarnir voru handsalaðir. Dagur vísar fullyrðingum Hildar við mbl.is í kvöld um að niðurfelling á innviðagjaldi og byggingaréttargjaldi á reitum olíufélaganna nemi fleiri milljörðum króna. „Þessi viðbótargjöld eru miklu lægri en svo,“ segir hann. Þá liggi heldur ekki fyrir í hversu mörgum tilvikum olíufélögin hafi unnið sínar tillögur nógu hratt til þess að eiga rétt á niðurfellingu viðbótargjaldanna samkvæmt samningunum. „Hagur borgarinnar af því að flýta umbreytingu úr bensínstöð í íbúðarhúsnæði er að í staðinn fyrir bensínstöð sem skilar okkur litlum tekjum þá fáum við íbúðarhúsnæði sem skilar fasteignagjöldum og íbúa sem borga útsvar. Þannig að það er mjög hratt að borga sig fyrir borgina,“ segir Dagur um samningana við olíufélögin.
Reykjavík Bensín og olía Ríkisútvarpið Fjölmiðlar Borgarstjórn Tengdar fréttir Berjast um bestu tillöguna Arkítektastofurnar Trípolí, Gríma arkitektar og Sei Studio keppast um bestu tillöguna að þróun lóðar Festar við Ægisíðu 102 í Reykjavík sem í dag hýsir þjónustustöð N1. Íbúabyggð kemur á svæðið og lofar Festi góðu samtali í nágrenninu. 17. janúar 2024 17:25 Segir engin annarleg sjónarmið að baki ákvörðun RÚV Heiðar Örn Sigurfinnsson fréttastjóri fréttastofu Ríkisútvarpsins segir engin annarleg sjónarmið hafa búið að baki því að innslag sem átti að sýna í fréttaskýringarþættinum Kveik síðasta þriðjudag hafi verið tekið af dagskrá. 27. apríl 2024 14:24 Mest lesið Tíu ára stúlku vísað úr strætó Innlent Ferðamaður sofnaði undir stýri og ók á rútu Innlent Óður hundur réðst á tvo í Grafarvogi Innlent Myndir frá eldsvoðanum í Húsafelli í nótt Innlent „Fólk er einfaldlega hrætt“ Erlent Leitin að Slater blásin af Erlent „Ástæða til að hafa áhyggjur“ Erlent Vöknuðu á floti og stigu út með drulluna upp að hnjám Erlent Hjólhýsi fauk af veginum í Borgarfirði Innlent „Hann á að vera hér á Íslandi“ Innlent Fleiri fréttir Hrædd um að hún mæti óvart í gömlu vinnuna í fyrramálið Hundsbitum fari fjölgandi Skúffukaka og mjólk vegna pirrings út af töppum Viðbrögð við sögulegum tölum í Frakklandi í beinni Ferðamaður sofnaði undir stýri og ók á rútu Hjólhýsi fauk af veginum í Borgarfirði Séra Arna Ýrr tekur við af verðandi biskupi Grafarvogsbúar þurfi ekki að óttast blokkir Óður hundur réðst á tvo í Grafarvogi Tónlistarveisla framundan í Skálholti Fórna sumarfríinu til að hjálpa fólki á hálendinu Öflugur skjálfti í Bárðarbungu Kosningar, uppbygging í Grafarvogi og hálendisvakt „Ég mun ekki taka þátt í prófkjöri aftur“ Tekinn próflaus á 120 kílómetra hraða Samsæriskenningar, borgarstjóri um húsnæðismál og kosningar Stungumaðurinn á hlaupahjólinu áfram í haldi Fleiri foreldrar í vanda með máluppeldi en áður Riðu um miðbæinn til að fagna Landsmóti Ómögulegt að vita hvað leynist í „brúnku-nefspreyjum“ sem seld eru á samfélagsmiðlum 82 ára snillingur í Hafnarfirði í hannyrðum „Hann á að vera hér á Íslandi“ Myndir frá eldsvoðanum í Húsafelli í nótt Alvarlegar aukaverkanir af brúnkunefspreyjum og brottvísun Yazans Tamimi Rændi fötum fyrir nánast hundrað þúsund Hugsi yfir lausagöngu fjár við vegi eftir að ferðamaður ók á lamb Séra Aldís Rut ráðin prestur við Grafarvogskirkjuprestakall Parísarhjólið varla óvinsælt ef sextíu þúsund vilja taka snúning Rabarabarahátíð í gamla bænum á Blönduósi Býst ekki við nýju eldgosi Sjá meira
Berjast um bestu tillöguna Arkítektastofurnar Trípolí, Gríma arkitektar og Sei Studio keppast um bestu tillöguna að þróun lóðar Festar við Ægisíðu 102 í Reykjavík sem í dag hýsir þjónustustöð N1. Íbúabyggð kemur á svæðið og lofar Festi góðu samtali í nágrenninu. 17. janúar 2024 17:25
Segir engin annarleg sjónarmið að baki ákvörðun RÚV Heiðar Örn Sigurfinnsson fréttastjóri fréttastofu Ríkisútvarpsins segir engin annarleg sjónarmið hafa búið að baki því að innslag sem átti að sýna í fréttaskýringarþættinum Kveik síðasta þriðjudag hafi verið tekið af dagskrá. 27. apríl 2024 14:24