Skoðun

Að velja for­seta

Stefán Bogi Sveinsson skrifar

Forsetakosningar eru ólíkar öllum öðrum kosningum. Þegar við kjósum okkur forseta er þjóðin að velja sér trúnaðarmanneskju, einstakling sem við treystum til að bregðast rétt við þegar viðbragða er þörf.

Við ætlumst til þess að forseti geti stýrt málum og tryggt að mynduð verði ríkisstjórn með fullnægjandi stuðning á lýðræðislega kjörnu Alþingi. Við þurfum að treysta dómgreind forseta til að taka ákvörðun um hvort vísa á lögum settum af þessu sama Alþingi í þjóðaratkvæðagreiðslu, ákvörðun sem ber aldrei að taka af léttúð eða á grundvelli persónulegra skoðana, heldur aðeins ef forseti metur það svo að brýna nauðsyn beri til. Þegar við horfum til þessara þátta er ljóst að embætti forseta er ekki ópólitískt í eðli sínu, þó það sé ekki flokkspólitískt, og það er kannski þess vegna sem Íslendingar hafa oft leitað til stjórnmálafólks til að gegna því, en helmingur þeirra sem setið hafa í embættinu til þessa höfðu bakgrunn í pólitík.

En forsetaembættið er líka annað og meira en það sem ég er búinn að nefna. Forseti þarf að bera skynbragð á sögu og samfélag okkar og geta á þeim grunni stigið fram og orðað það sem sameinar okkur sem þjóð. Orðað ófrávíkjanleg gildi okkar eins og lýðræði og mannréttindi öllum til handa. Orðað það sem okkur er dýrmætast eins og tungumálið og náttúruna. Forseti þarf að geta leitt okkur í einlægum fögnuði og þjóðarstolti yfir afrekum Íslendinga á sviði menningar, íþrótta og hverju því öðru sem við stöndum sameinuð að baki. En forseti þarf líka að geta komið sameiginlegum harmi okkar og þjóðarsorg í orð þegar áföll dynja á.

Forsetaembættið er óvenjulegt og fyrir vikið þarf manneskju með óvenjulegar gáfur og hæfileika til að sinna því. Það er enginn vafi í mínum huga að Katrín Jakobsdóttir er þess konar manneskja. Hún hefur til að bera gríðarlega reynslu og þekkingu á samfélaginu okkar, stjórnskipan, menningu og tungumáli og hún er hlý, mannleg og einlæg í öllu sem hún gerir. Hún er að mínu mati best til þess fallin af öllum að sinna þessu krefjandi verkefni. Ég mun þess vegna greiða Katrínu atkvæði mitt í komandi forsetakosningum og treysti því að þjóðinni beri gæfa til þess að velja hana sem forseta Íslands.

Höfundur er lögfræðingur og héraðsskjalavörður.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×