Skoðun

Helga Þóris­dóttir og fjör­egg ís­lenskrar þjóðar

Páll Torfi Önundarson skrifar

Forseti Íslands, eini þjóðkjörni fulltrúi landsmanna, gegnir grundvallarhlutverki vegna þeirrar ábyrgðar og valds, sem embættinu fylgir. Þeir sem lesið hafa þjóðsögur og ævintýri vita að brothættra fjöreggja sinna þarf hver vel að gæta, ella verða fjörbrot. Forseti Íslands gætir sjálfs fjöreggs þjóðarinnar með þeim möguleika að skrifa ekki undir lög sem hann telur varða líf þjóðarinnar eða rétt landsmanna. Forseti er því öryggisventill sem getur stöðvað samþykkt lög frá sjálfu Alþingi með vísun í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Ólafur Ragnar Grímsson beitti málskotsréttinum á neyðarstund í þágu þjóðarinnar þegar Alþingi og ríkisstjórn hafði gefist upp fyrir erlendu fjármálavaldi. Þar sannaðist að þjóðinni hafði borið gæfa til þess að velja sér til forystu manneskju sem hafði menntun, þekkingu á sögu lands og þjóðar, reynslu og kjark til að gæta fjöreggsins. En hvernig velur þjóðin sér frambjóðendur til forsetaembættisins?

Í heimi nútímans virðist stundum sem umbúðir skipti meira máli en innihald vörunnar. Áberandi andlit í fjölmiðum, t.d. stjórnmálamenn, andlit sem birtast oft, leikarar, skemmtikraftar og forsvarsmenn þrýstihópa hafa augljóst forskot á aðra frambjóðendur. Hvernig á þjóðin þá að fá að kynnast fólki, sem hugsanlegt er að hafi mest fram að færa vegna menntunar, reynslu og fyrri starfa, en hefur rækt störf sín hljóðlega?

Forstjóri Persónuverndar, Helga Þórisdóttir lögfræðingur og öflugur embættismaður til nær 30 ára, kemur ótrúlega vel fyrir vegna augljóss vits, menntunar, yfirburðaþekkingar, reynslu og skýrrar sýnar á forsetaembættið. Hlustið á viðtöl við hana á netinu. Þar kemur fram djúpstæður skilningur á landsmálum og alþjóðamálum, skilningur á ógn sem almenningi stafar af yfirþjóðlegum fyrirtækjum þar sem Mammon svífst einskis, og skilningur á nauðsyn verndar almennings fyrir slíkum öflum. Mikill skilningur á íslenskri menningu og tungu Íslendinga og þó án nokkurs þjóðernishroka. Mikill skilningur á bættri menntun barna og unglinga. Mikið vit. Engir innihaldslitlir frasar. Hlýja en samt kjarkur. Eirir ekki áhrifamönnum þurfi á því að halda.

Þegar rödd frambjóðanda, sem mér finnst e.t.v. hafa mest fram að færa, nær ekki í gegn í ótímabærum skoðanakönnunum velti ég því fyrir mér hvort skoðanakannanir sem framkvæmdar eru áður en framboðsfresti lýkur séu beinlínis skoðanamótandi og því skaðlegar sjálfri þjóðinni við val forsetaefna? Ég skora á Íslendinga að kynna sér Helgu Þórisdóttur á helgathorisdottir.is og að missa ekki af tækifærinu að kjósa sér heilsteyptan forseta. Ég kýs hana verði hún á kjörseðlinum.

Höfundur er yfirlæknir á Landspítala og prófessor við læknadeild Háskóla Íslands.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×