Skoðun

Baldur í lit

Anna Lára Pálsdóttir skrifar

Í norrænni goðafræði var Baldur bestur og mest elskaður allra goða. Hann var kallaður hinn hvíti svo hreinn og flekklaus sem hann var. Baldur hvíti bjó í Breiðablik og einnig þar var allt tandurhreint og óspillt. Nafnbótin, hinn hvíti, sýnir að hér er á ferðinni yfirskilvitleg vera sem er fullkomlega laus við mannlega annmarka. Kristur fékk einmitt sama viðurnefni.

Í umræðu um væntanlegan húsráðanda á Bessastöðum þykir mér þjóðin vænta þess að Baldur hvíti sé í forsetaframboði svona líka hvítskúraður og syndlaus. Að þjóðin haldi að í mannheimum fyrirfinnist frambjóðandi sem aldrei hefur sagt neitt sem hann iðrast, aldrei hefur skipt um skoðun, sýnt mannlegan breyskleika eða gert mistök. Fólk er uppteknara af því að grafa upp brestina og benda á þá en að sjá hvaða mannkostir eru til staðar og hvaða erindi viðkomandi á.

Vinur minn, Baldur Þórhallsson, er ekki yfirnáttúrulegur eins og nafni hans hinn hvíti. Baldur Þórhallsson er mennskur og kemur í öllum litum regnbogabrúarinnar Bifrastar.

Við Baldur erum jafnaldrar og sveitungar. Ég man fyrst eftir Baldri þegar hann tók á móti hópi Norðmanna sem voru í vinabæjarheimsókn, en fjölskylda mín fór með gestina að skoða Ægissíðuhellana. Baldur, sem var þarna um tólf ára aldurinn, veitti framúrskarandi leiðsögn. Ég man að fullorðna fólkinu í ferðinni var tíðrætt um hversu kotroskinn og fróður strákurinn væri. Við Baldur vorum samferða menntaskólaárin fjögur á Laugarvatni. Hann var feiminn og hógvær strákur sem lét ekki mikið fyrir sér fara, hafði gaman af því að ræða heimsmálin og var alltaf í klossum. Baldur fór á dýptina í samtölum og flestir höfðu ekki vanist jafn mikilli þjóðmálaumræðu og honum var greinilega tamt. Hann hafði ávallt góða nærveru og kom fram við alla af sömu virðingu. Ég veit núna að hann fékk hvorki leyfi né rými til þess að vera hann sjálfur á þessum árum. Hann fékk að blómstra síðar en þurfti sannarlega að vinna fyrir því.

Útskriftarárgangurinn okkar úr ML er enn þéttur hópur og við hittumst reglulega. Baldur nýtur óumdeildrar virðingar og væntumþykju í hópnum og við treystum hans dómgreind. Baldur hefur skapað sér sess sem virtur fræðimaður og vinsæll kennari en það er ekki síður yndislegt að fylgjast með fallegu fjölskyldunni hans vaxa og dafna. Samband þeirra hjóna við barnsmæður sínar er aðdáunarvert og til eftirbreytni.

Baldur er sveitastrákur og Baldur er heimsborgari. Hann er svolítið eins og Forseti, sonur Baldurs hvíta, svo ég haldi mig nú við goðafræðina. Forseti var goð réttlætis og sátta. Ég veit að Baldur verður framúrskarandi forseti. Hann er mikill fagmaður, réttsýnn og vönduð manneskja sem kemur fram af heilindum. Baldur hefur upplifað forréttindi og upphafningu, gleði og sigra en einnig fordóma og jaðarsetningu, sorgir og missi. Aðeins þannig forseti getur skilið þjóð sína.

Höfundur er kennsluráðgjafi.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×