Lífið

Galvaskar á Gugguvaktinni

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Það var algjör gellustemning á Gugguvaktinni á AUTO síðastliðið föstudagskvöld.
Það var algjör gellustemning á Gugguvaktinni á AUTO síðastliðið föstudagskvöld. Róbert Arnar

Skemmtistaðurinn AUTO stóð fyrir skvísukvöldi síðastliðinn föstudag undir heitinu Gugguvaktin. Margt var um skvísurnar sem fylltu staðinn og skvísusmellir ómuðu um dansgólfið. 

Plötusnúðurinn Guðný Björk byrjaði kvöldið og plötusnúðatvíeykið Glókollur, þær Glódís og Kolbrún Birna, tóku svo við fram eftir nóttu. Súkkulaðistrákurinn Patrik tróð upp og tók meðal annars smellinn sinn Gugguvaktin og Margrét Erla Maack lék burlesque listir sínar. 

Ljósmyndarinn Róbert Arnar náði að fanga stemninguna. Hér má sjá vel valdar myndir frá kvöldinu: 

Embla Óðinsdóttir var í frábærum gír í bol frá tónlistarmanninum Patriki en bolurinn hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum að undanförnu og vísar í nýtt lag frá kappanum. Róbert Arnar
Þessar skvísur skáluðu fyrir gellupartýinu. Róbert Arnar
DJ Guðný Björk var algjör skvísa í appelsínugulum Rotate kjól. Róbert Arnar
Maður í bleikri blöðru skemmti skvísunum. Róbert Arnar
Glódís skipar DJ dúóið Glókoll ásamt Kolbrúnu Birnu. Hún rokkaði Yeoman gellusett og sýndi gellubyssurnar. Róbert Arnar
Flugfreyjan Birna Lind Pálmadóttir glæsileg að vanda.Róbert Arnar
Gellurnar fylltu staðinn og gelluorkan var allsráðandi. Róbert Arnar
Margrét Erla Maack stýrði miklu fjöri. Róbert Arnar
Gellur að gellast. Róbert Arnar
Það var mikið stuð á AUTO þar sem plötusnúðar, tónlistarmenn og skemmtikraftar tróðu upp.Róbert Arnar
Ofurskvísurnar Patrekur Jaime og Gugga létu sig ekki vanta.Róbert Arnar
Guggur á Gugguvaktinni. Róbert Arnar
Hin glæsilega Anna Guðný Ingvarsdóttir skálaði fyrir lífinu með guggunum. Róbert Arnar
Þessar brostu sínu breiðasta. Róbert Arnar
Patrekur Jaime brosti breitt með glansandi varir. Róbert Arnar
Skvísulæti. Róbert Arnar
Ofurskvísurnar Brynja Bjarnadóttir og Anna Lísa létu sig ekki vanta í gellugleðina. Róbert Arnar
Það voru ýmis fjölbreytt og fjörug atriði á dagskrá.Róbert Arnar
Skvísur í sínu fínasta pússi. Róbert Arnar
Embla Óðinsdóttir skipti um föt og rokkaði appelsínugulan kjól. Róbert Arnar
Stuð og læti! Róbert Arnar
Það var hiti á klúbbnum þegar PBT steig á svið. Róbert Arnar
Blush var með gellulukkuhjól á staðnum. Róbert Arnar
Skvísurnar á bak við Mamma Mia Vintage dressuðu sig upp fyrir kvöldið. Róbert Arnar
Töffaraskvísur. Róbert Arnar
Gellufjör við barinn! Róbert Arnar
Freyðivínsflöskur og blys! Róbert Arnar
Skvísurnar fjölmenntu á Gugguvaktina. Róbert Arnar
Gróa og Anna Lísa í Delulu bolunum. Róbert Arnar
Sólgleraugun dregin upp! Róbert Arnar
Er á Gugguvaktinni, ekki vera að trufla mig, segir í texta Patriks. Róbert Arnar
Birna Rún og Birna Sísí skemmtu sér vel með vinkonum. Róbert Arnar
Það voru ófáar sólgleraugnaskvísur á svæðinu enda geta sólgleraugun verið ómissandi hluti af fatnaðinum. Róbert Arnar
SkvísuvinkonurRóbert Arnar
AUTO var einungis opið fyrir skvísur til klukkan 01 þegar að staðurinn opnaði fyrir öllum. Róbert Arnar
Skvísurnar Patrik og Gústi B mættu með vinina til að gigga. Róbert Arnar





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.