Skoðun

Hin ís­lenska þver­sögn: Rót­tækur femín­ismi og fé­lags­legur ó­jöfnuður

Valerio Gargiulo skrifar

Ísland er þekkt fyrir að vera í efsta sæti heimslistans í jafnréttismálum og fyrir að vera leiðarljós róttæks femínisma. Á bak við þessa framsæknu framhlið býr hins vegar félagslegt misrétti sem hefur áhrif á margar konur, sérstaklega einstæðar mæður.

Enn fremur hefur Íslandi oft verið hrósað fyrir skuldbindingu sína til að taka á móti flóttamönnum og bjóða þeim aðstoð og vernd. Þessi skuldbinding hefur hins vegar leitt til mótsagnakennds ástands þar sem íbúar eiga í erfiðleikum með að finna húsnæði á viðráðanlegu verði. Þegar landið opnar sig fyrir þeim sem flýja stríð, ofsóknir og annars konar kúgun, lenda eigin þegnar þess í að þurfa að takast á við áður óþekkta húsnæðiskreppu. Eftirspurn eftir húsnæði eykst en framboðið nær ekki að halda í við. Leiguverð hækkar upp úr öllu valdi og margar íslenskar fjölskyldur neyðast til að búa við ótryggar aðstæður eða jafnvel án þaks yfir höfuðið. Vandamálið eykst af því að mikið fjármagn, fjármögnun og félagslegt húsnæði beinist að flóttamönnum og hælisleitendum, sem skilur eftir heimamenn í óhag. Þar með er ekki sagt að draga eigi úr eða afnema aðstoð við flóttamenn, heldur að finna þurfi betra jafnvægi á milli flóttamannaaðstoðar og velferðar íslenskra ríkisborgara.

Merkilegt tilfelli er vinkona mín, einstæð móðir tveggja lítilla stúlkna, þar af önnur langveik, sem lendir í því að berjast við erfiðleika daglegs lífs eins og síhækkandi leigu á íbúðinni sinni og missir hana svo vegna þess að eigandi hennar setti hana á sölu, að auki, standa í miklum kostnaði við læknisþjónustu og að kaupa lyf fyrir dóttur sína. Þrátt fyrir skuldbindingu sína og þúsund fórnir, sér hún sig tilneydda til að vinna þrjú störf til að standa undir framfærslukostnaði og lifa af út mánuðinn án þess að leyfa sér nokkuð umfram mánaðarlegra útgjalda.

Þetta mál vakti mig til umhugsunar vegna þess að það varpar ljósi á djúpstæða gjá á milli þeirrar ímyndar um framfarir og jafnrétti sem Ísland varpar fram og raunveruleika sem margar konur upplifa, sérstaklega þær sem eru í viðkvæmum aðstæðum. Þó að mikil skuldbinding sé um að efla réttindi kvenna og jafnrétti kynjanna er enn mikið ógert til að tryggja að þessi loforð skili sér í áþreifanlegar niðurstöður fyrir allar konur.

Höfundur er skáld, rithöfundur og þýðandi.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×