Skoðun

Alls­konar fyrir aumingja

Gudmundur Felix Gretarsson skrifar

Það er mér ávallt minnisstætt þegar Besti flokkurinn kom fram á sjónarsviðið og lofaði að “gera allskonar fyrir aumingja”. Þessi orð hittu svo sannanlega naglann á höfuðið sem skilaboð frambjóðenda fyrir kosningar. Sumum þótti kannski orðalagið óviðeigandi en fyrir okkur fólk með fötlun var þetta hárrétt þýðing á kosningaloforðum þeirra sem skreyttu sig með umhyggju fyrir málaflokknum.

Í vikunni sýndi RUV Kveik þáttinn um fólkið í geymslunni. Þessi þáttur sýndi okkur glöggt hvernig er haldið utan um málefni fatlaðs fólks og hefur verið á áratugi.

Það getur enginn ófatlaður einstaklingur gert sér í hugarlund áfallið við það að missa skyndilega getuna til að eiga sjálfstætt líf. En áfallið sem kemur á eftir þar sem bjargarlausu fólki er meinað um alla mannlega reisn er ofbeldi sem hægt er að stöðva og ætti aldrei að viðgangast í siðuðu velferðarsamfélagi.

Ég þekki það vel á eigin skinni hvernig það er að búa við fötlun. Ég er einn af þeim heppnu. Ég bjó í eigin húsnæði og alla morgna fékk ég aðstoð á heimilið við að klæða mig og fæða. Næstu 24 tíma keyrði ég svo á milli vina og ættingja þar sem ég fékk ýmist að borða eða aðstoð á salerni. Áhugamál og félagslíf var lúxus sem best var að hætta að hugsa um strax. Líf fatlaðs fólks er eins og fangelsi án glæps. Lífsgæðin algerlega undir vinum og ættingjum komin. Sum okkar eru heppin, önnur ekki.

Ef þátturinn um fólkið í geymslunni hefur kennt okkur eitthvað þá er það að pólitíkin gerir ekkert fyrir þær einu sakir að “það er rétt að gera”. Eflaust er margt gott fólk í pólitík sem vildi gera meira, en athyglin flæðir þangað sem hávaðinn er mestur. Frá geymslunni kemur bara ærandi þögn hinna raddlausu.

Málefni fatlaðra er bara einn angi af skeytingarleysi stjórnmálanna. Málefni fólks með fíknisjúkdóma er í algjörum ólestri og aldraðir liggja á göngum sjúkrahúsa vegna plássleysis á hjúkrunarheimilum.

Ég býð mig fram til að standa vörð um reisn allra sem byggja þetta samfélag. Ég býð mig fram fyrir hönd þeirra sem get það ekki sjálf. Ég býð mig fram vegna þess að ég þekki þjáningar hinna ósýnilegu. Ég býð mig fram því ég er rödd hinna raddlausu.

Það versta sem getur hent samfélög er skeytingarleysi. Þegar okkur finnst þjáning annara ekki koma okkur við þá höfum við misst hluta af því sem gerir okkur mannleg.

Höfundur er rafveituvirki og forsetaframbjóðandi.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×