Lífið

Geymdi pasta á sviðinu ef hann skildi verða svangur milli laga

Bjarki Sigurðsson skrifar
Luciano Pavarotti að syngja árið 1995.
Luciano Pavarotti að syngja árið 1995. Getty/Brian Rasic

Einn allra frægasti tenór sögunnar, Ítalinn Luciano Pavarotti, geymdi oft pastarétti í vængjum sviðsins sem hann söng á, svo hann gæti rölt út af sviðinu milli laga og fengið sér bita. 

Page Six greinir frá þessu og hefur það eftir Peter Gelb, listrænum stjórnanda hjá Met í New York. Hann hefur ekki sagt þetta opinberlega en þegar hann hefur verið að sýna fólki bygginguna hefur hann rætt þessa sögu. 

„Pavarotti, sem var alltaf svangur, faldi oft skammta af uppáhaldspastanu sínu til hliðar á sviðinu svo hann gæti rölt út af á milli laga og fengið sér að borða,“ er haft eftir Gelb. 

Klippa: Luciano Pavarotti jarðsunginn

Pavarotti var einn af Tenórunum þremur ásamt José Carreras og Plácido Domingo en þeir voru gríðarlega vinsælir á tíunda áratug síðustu aldar. Pavarotti hélt tónleika í Laugardalshöll árið 1980.

Hann lést í september árið 2007 eftir að hafa greinst með krabbamein í brisi rúmu ári áður. 


Tengdar fréttir

Messa á Íslandi til minningar um Pavarotti

Sungin verður sérstök sálumessa til minningar um stórsöngvarann Luciano Pavarotti í Landakotskirkju næstakomandi mánudag. Fyrir messu flytja Sigrún Hjálmtýsdóttir, Pamela De Sensi, Jóhann Friðgeir Valdimarsson og Leone Tinganelli lög úr ítölskum óperum.

Luciano Pavarotti jarðsunginn

Vinir, ættingjar og aðdáendur stórtenórsins Lucianos Pavarotti fylgdu honum til grafar í heimabæ hans, Modena á Ítalíu í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.