McBurnie hetja botnliðsins gegn Chelsea Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 7. apríl 2024 18:28 Oliver McBurnie bjargaði stigi fyrir Sheffield United. Mike Egerton/PA Images via Getty Images Oliver McBurnie reyndist hetja Sheffield United er liðið nældi sér í 2-2 jafntefli gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Þrátt fyrir að gengi Chelsea á tímabilinu hafi ekki verið upp á marga fiska bjuggust líklgea flestir við því að liðið myndi ekki lenda í miklum vandræðum gegn botnliði Sheffield United. Thiago Silva kom gestunum í Chelsea yfir strax á 11. mínútu eftir stoðsendingu frá Conor Gallagher, en Jayden Bogle jafnaði metin fyrir heimamenn eftir rétt rúmlega hálftíma leik og staðan var því 1-1 þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja. Gestirnir náðu þó forystunni á nýjan leik á 66. mínútu þegar Noni Madueke skoraði annað mark Chelsea með föstu skoti innan vítateigs. Staðan var enn 2-1, Chelsea í vil, þegar venjulegum leiktíma lauk og því stefndi allt í sigur gestanna. Oliver McBurnie var þó ekki á sama máli og hann jafnaði metin fyrir Sheffield United á fjórðu mínútu uppbótartíma þegar hann mokaði boltanum yfir línuna eftir að Cameron Archer hafði skallað boltann fyrir markið. Niðurstaðan varð því dramatískt 2-2 jafntefli. Chelsea situr enn í níunda sæti deildarinnar, nú með 44 stig eftir 30 leiki. Sheffield United situr hins vegar sem fastast á botninum með 16 stig, níu stigum frá öruggu sæti.
Enski boltinn Mest lesið Vandræði KR við nýja völlinn: „Hér var bara mýri og ruslahaugur“ Íslenski boltinn Leik Alberts og öllum öðrum á Ítalíu frestað vegna andláts páfa Fótbolti Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Enski boltinn „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Íslenski boltinn Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Enski boltinn Dagskráin í dag: Íslenskt góðgæti með erlendu kryddi Sport „Vonast til að vera sendiherra fyrir alla leikmenn Palestínu“ Fótbolti Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Sport „Þetta var hræðilegt og 2025 verður sársaukafullt“ Formúla 1 Saka ekki alvarlega meiddur Enski boltinn Fleiri fréttir Fimmtán ára bjargaði stigi fyrir Brøndby „Vonandi fáum við fulla stúku í dag“ Fjörutíu mínútna hlé eftir að peningi var kastað í dómara Leik Alberts og öllum öðrum á Ítalíu frestað vegna andláts páfa Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Vandræði KR við nýja völlinn: „Hér var bara mýri og ruslahaugur“ Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Saka ekki alvarlega meiddur „Vonast til að vera sendiherra fyrir alla leikmenn Palestínu“ „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Ástbjörn missir af næstu leikjum KR Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold Bologna gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Inter Valverde bjargaði vondri viku Evrópumeistararnir fóru hamförum Daníel Leó með mikilvægt sigurmark á meðan Kolbeinn skoraði í tapi „Vinnur ekki leiki ef þú skorar ekki“ ÍA og Vestri mætast inni Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Hákon nær Meistaradeildinni en Mikael áfram í fallsæti Úlfarnir unnu United aftur Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Grýtti spjaldtölvu í jörðina þegar víti var ekki dæmt María lagði upp og fyrsta stigið komið í hús Losað um hlekki Jóns Dags sem lagði upp eftir tuttugu sekúndur Stefán Gísli fékk fimm ára samning hjá Val Ancelotti segir engin illindi milli sín og forsetans Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Sjá meira