Skoðun

Hvernig for­seti Ís­lands getur aukið at­vinnu og vel­sæld á Vest­fjörðum

Ástþór Magnússon skrifar

Staða atvinnumála, raforku og heilbrigðismála á Vestfjörðum er sagt í ólestri. Sveitarfélög ræða um stuðning við sjávarútveg, landbúnað og ferðaþjónustu. Einnig hvetja til nýsköpunar og vaxtar í öðrum greinum. Tökum samtal um verkefnið Virkjum Bessastaði og hvernig við getum byggt upp nýja atvinnugrein tengt friðarmálum.

Ísfirska fyrirtækið Kerecis sem á stuttum tíma varð eitt verðmætasta fyrirtæki landsins er lýsandi dæmi um tækifærin á vestfjörðum fyrir nýsköpun og erlenda samvinnu. Þar mætti staðsetja alþjóðlegan friðarháskóla og þjálfunarbúðir friðargæsluliða. Harðbýlt landslagið gæti hentað slíku einstaklega vel.

Þegar er kominn vísir að alþjóðlegri menntastofnun á Ísafirði með samstarfi SIT (School for International Training) og UW (Háskólasetur Vestfjarða). SIT er með námsbraut fyrir Frið & Réttlæti og tilvalið að opna þá námsbraut á Ísafirði sem hluta af átakinu Virkjum Bessastaði.

UN ITS (Samþætt þjálfunarþjónusta Sameinuðu þjóðanna fyrir friðargæslu) er með margvíslega kennslu fyrir fólk allstaðar að úr heiminum. POTI (Þjálfunarstofnun friðaraðgerða) sem er sjálfseignarstofnun hefur þjálfað tæplega tvær milljónir manns frá 195 löndum til friðargæslustarfa kostað af nokkrum ríkjum utan bandaríkjanna. Í samvinnu við þessar stofnanir mætti setja af stað friðargæslunám á Vestfjörðum.

Samhliða því að koma á fót endurbættum stofnunum Sameinuðu þjóðanna á Íslandi þarf auðvitað að leysa úr þeim vandamálum sem blasa við á Vestfjörðum. Sveitarfélögin hafa talað um að svæðið sé ekki samkeppnishæft vegna vandamála við samgöngur, fjarskipti og raforku. Einnig hefur verið rætt um endurbætur á flugvöllum og jafnvel að koma á millilandaflugi frá vestfjörðum. Flugvellir þar eru hinsvegar vel til þess fallnir að nota við þjálfun flugmanna friðargæslunnar sem þurfa að kunna að fljúga í erfiðum aðstæðum. Raforkumál má leysa með nýjum umhverfisvænum lausnum sem nú finnast, og í fjarskiptum eru nú komnar lausnir með gervihnöttum. Vestfirðingar ættu því að taka höndum saman að Virkja Bessastaði og setja sig á kortið sem alþjóðlegan stað fyrir þjálfun friðargæslunnar.

Ekki aðeins Ísfirðingar, meirihluti þjóðarinnar hefur lýst óánægju með ástandið í heilbrigðismálum. Með því að Virkja Bessastaði til friðar- og lýðræðismála getum við aukið þjóðartekjur um sex hundruð milljarða og skapað 21 þúsund störf um leið og Íslendingar láta gott af sér leiða til friðarmála. Sumir spyrja hvernig er þetta hægt og ná ekki alveg að tengja.

Opnir borgarafundir hefjast í kvöld á nuna.is

Ég mun kynna verkefnið á opnum borgarafundum sem hefjast í kvöld kl. 20:00 á vefnum www.nuna.is þar sem Vestfirðingar og aðrir geta átt við mig samtal um hvernig við byggjum upp nýjan atvinnuveg friðarmála hér á landi og hvernig það mun skila sér í aukinni velsæld.

Aðgangur að mannsæmandi heilbrigðisþjónustu eru stjórnarskrárbundin réttindi. Forseta Íslands ber að standa vörð um slík réttindi þjóðarinnar og það mun ég gera verði ég kjörinn í embættið.

Höfundur er forsetaframbjóðandi.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×