Everton bjargaði stigi í norðrinu | Fulham gerði þrefalda skiptingu í fyrri hálfleik Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 2. apríl 2024 20:30 Calvert-Lewin tryggði Everton stig. Stu Forster/Getty Images Everton hafði ekki unnið leik síðan í desember á meðan heimamenn í Newcastle lifa í voninni um sæti í Meistaradeild Evrópu að ári. Það kom því lítið á óvart þegar Alexander Isak kom heimaliðinu yfir með frábær marki eftir að fara illa með varnarlínu Everton. Newcastle vs. Everton paused once the sun went down to allow their Muslim players to break Ramadan fast pic.twitter.com/OIQXAdqVEd— B/R Football (@brfootball) April 2, 2024 Dan Burn hélt hann hefði tvöfaldað forystu Newcastle eftir um klukkustund en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Það var svo undir lok leiks sem gestirnir úr Bítlaborginni fengu vítaspyrnu. Dominic Calvert-Lewin steig upp og skorðaði, naumlega þó þar sem Martin Dúbravka slæmdi hendi í knöttinn á leið hans í netið. Calvert-Lewin has scored more Premier League goals against Newcastle than any other side (6).He breaks his duck against his favourite opposition. https://t.co/ZAHqllZy9D— Squawka (@Squawka) April 2, 2024 Newcastle er í 8. sæti með 44 stig að loknum 30 leikjum á meðan Everton er í 16. sæti með 26 stig, fjórum frá fallsæti. Í Skírisskógi var Fulham í heimsókn og byrjuðu heimamenn af gríðarlegum krafti. Eftir níu mínútna leik kom Callum Hudson-Odoi heimaliðinu yfir eftir undirbúning Morgan Gibbs-White. Tíu mínútum síðar tvöfaldaði Chris Wood forystuna og var Marco Silva, þjálfari Fulham, allt annað en sáttur með gang mála Gerði hann þrefalda skiptingu á 33. mínútu en því miður fyrir gestina breytti það ekki miklu. Gibbs-White bætti við þriðja markinu undir lok uppbótartíma og staðan 3-0 í hálfleik. 33 minutes in and 2-0 down, Marco Silva has made THREE changes at the City Ground. #BBCFootball #NFOFUL pic.twitter.com/d3rsc8Q523— Match of the Day (@BBCMOTD) April 2, 2024 Tosin Adarabioyo minnkaði muninn í upphafi síðari hálfleiks eftir hornspyrnu Andreas Pereira. Fleiri urðu mörkin ekki og Forest vann gríðarlega mikilvægan 3-1 sigur í fallbaráttunni. Forest eru nú með 25 stig í 17. sæti, þremur frá fallsæti. Fulham er í 13. sæti með 39 stig. Enski boltinn Fótbolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti