Umfjöllun: Haukar - Álftanes 91-98 | Gestirnir styrktu stöðu sína með sigri í Ólafssal Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 28. mars 2024 18:00 Kjartan Atli Kjartansson, þjálfari Álftaness, á hliðarlínunni. Vísir/Hulda Margrét Álftanes styrkti stöðu sína í 6. sæti Subway-deildar karla með góðum sigri á Haukum í Ólafssal. Vegna óviðráðanlegra aðstæðna var ekki bein textalýsing frá leiknum hér á Vísi.
Álftanes styrkti stöðu sína í 6. sæti Subway-deildar karla með góðum sigri á Haukum í Ólafssal. Vegna óviðráðanlegra aðstæðna var ekki bein textalýsing frá leiknum hér á Vísi. Um var að ræða leik í næstsíðustu umferð deildarinnar og hvorugt lið í raun að keppa að miklu þó Álftanes vilji augljóslega koma inn í úrslitakeppnina á góðu nótunum. Að sama skapi er ljóst að Haukar geta hvorki fallið né komist í úrslitakeppnina. Það var þó ekki að sjá í upphafi leiks. Haukar byrjuðu af miklum krafti og voru einu stigi yfir þegar fyrsta leikhluta lauk. Í öðrum leikhluta sýndu gestirnir frá Álftanesi hvað í þeim býr og leiddu þeir með átta stigum í hálfleik, staðan þá 42-50. Haukar komu sterkir inn í síðari hálfleikinn og úr varð hörkuleikur sem Álftanes vann ekki fyrr en undir blálokin, lokatölur í Ólafssal 91-98. David Okeke var stigahæstur hjá Haukum með 25 stig og 11 fráköst. Þar á eftir kom Everage Richardsson með 21 stig. Hjá gestunum var Haukur Helgi Briem Pálsson stigahæstur með 25 stig ásamt því að taka fimm fráköst og gefa fimm stoðsendingar. Giga Norbertas var svo með 15 stig ásamt því að taka 13 fráköst. Álftanes er í 5. sæti með 12 sigra í 21 leik á meðan Haukar eru í 10. sæti með fimm sigra.
Subway-deild karla Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira