Stöku él í flestum landshlutum Atli Ísleifsson skrifar 26. mars 2024 07:09 Reiknað er með að það verði yfirleitt vægt frost á landinu en rétt yfir frostmarki sunnantil yfir daginn. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir norðan- og norðaustanátt í dag, víða fimm til tíu metrar á sekúndum, en suðaustan átta til þrettán á Suðvesturlandi í dag. Reikna má með stöku éljum í flestum landshlutum en úrkomulítið að mestu á Suðausturlandi og norðvestanlands.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að það verði yfirleitt vægt frost en rétt yfir frostmarki sunnantil yfir daginn. „Norðaustan 5-13 á morgun, en 13-18 suðaustanlands. Él fyrir norðan og austan en bjart að mestu sunnan- og vestanlands. Hiti breytist lítið. Norðaustan 10-15 á fimmtudag en 15-20 á Suðausturlandi. Léttskýjað sunnan- og vestantil en annars dálítil él. Frost 2 til 7 stig en hiti víða nálægt frostmarki að deginum. Útlit fyrir föstudag og páskahelgina er mjög svipað. Norðaustanátt, sums staðar frekar hvöss, einkum suðaustantil. Dálítil él á víð og dreif en bjartviðri sunnan- og vestanlands. Frost víða um land en rétt yfir frostmarki sunnantil að deginum,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Norðaustan 5-13 m/s, en 13-18 í vindstrengjum suðaustantil. Dálítil él á Norður- og Austurlandi, annars léttskýjað. Frost víða 0 til 5 stig, en frostlaust sunnanlands að deginum. Á fimmtudag: Norðaustan 10-15, en 15-20 á suðaustanverðu landinu. Él fyrir norðan og austan, en þurrt sunnan heiða. Hiti breytist lítið. Á föstudag og laugardag: Norðaustanátt 8-13, en 13-18 austast á landinu. Léttskýjað sunnan- og vestanlands, en dálítil él á Norðaustur- og Austurlandi. Víða vægt frost, en frostlaust sunnanlands yfir hádaginn. Á sunnudag: Norðaustanátt og víða lítilsháttar él, en bjart að mestu suðvestanlands. Hiti breytist lítið. Á mánudag: Norðaustlæg eða breytileg átt. Dálítil él austanlands en bjart með köflum vestantil. Frost 0 til 7 stig en rétt yfir frostmarki sunnantil yfir daginn.
Veður Mest lesið „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Innlent Leiðtogi Hezbollah allur Erlent Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Erlent Þyrlan kölluð út vegna fjórhjólaslyss Innlent Brotthvarf Katrínar hafði mikil áhrif Innlent „Ég hitti ungt fjölskyldufólk sem er gjörsamlega að kikna“ Innlent Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Erlent Verkfall á hjúkrunarheimilum ef lausn næst ekki á mánudag Innlent Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Innlent „Verðmæti fólgin í því að halda Reykjanesbraut opinni“ Innlent Fleiri fréttir Lægð stjórnar veðrinu um helgina Lægðardrag þokast suður Rigning eða slydda norðan- og austanlands Dregur úr vindi og ofankomu Svalt í veðri og gengur í blástur Útlit fyrir áframhaldandi rólegheit Milt veður en lægð nálgast Hægir suðvestanvindar og yfirleitt bjartviðri Allt að 17 stig á Austurlandi Næsta lægð nálgast úr suðvestri Gular viðvaranir í hvassviðris Lægð nálgast landið í nótt og gular viðvaranir á morgun Rigning, slydda og jafnvel snjókoma norðaustanlands Gul viðvörun á Suður- og Suðausturlandi til hádegis Gular viðvaranir vegna storms sunnantil Um sjö stiga frost mældist í Eyjafirði í nótt Þurrt og bjart nokkuð víða Norðanáttum beint til landsins Von á 35 metrum á sekúndu í hviðum á Kjalarnesi Kalt, blautt og hvasst „Þetta er alvöru hret“ Snjókoma á Norðurlandi og ekki mælt með ferðalögum Gular og appelsínugular viðvaranir víða um land Búast við slyddu og snjókomu á fjallvegum Hiti gæti náð tuttugu stigum fyrir austan Hvessir aftur þegar líður á daginn Slær sums staðar í storm norðvestantil Lægð yfir landinu og gul viðvörun á Breiðafirði Bjartur dagur sunnantil og hiti að sextán stigum Spáð mildu veðri í dag Sjá meira