Lífið

Skandinavískt yfir­bragð á heimili förðunardrottningar

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Eignin er á fyrstu hæð í þriðja íbúða fjölbýlishúsi miðsvæðis í Hafnarfirði.
Eignin er á fyrstu hæð í þriðja íbúða fjölbýlishúsi miðsvæðis í Hafnarfirði.

Heiður Ósk Eggertsdóttir, förðunarfræðingur og eigandi Reykjavík Makeup School, og knattspyrnukappinn Steven Lennon, hafa sett fallega hæð við Arnarhraun í Hafnarfirði á sölu. Ásett verð er 89,9 milljónir.

Nýverið slitnaði upp úr sambandi Heiðar og Steven og er eignin því komin á sölu. 

Heimilið er fallega innréttað umvafið ljósri litapallettu í bland við svartan sem gefur heimilinu dýpt og glæsileika. Á gólfum er ljóst fiskibeinaparket sem gefur rýminu skandinavískt yfirbragð.

Yfir borðstofunni má sjá loftljósið Vertigo í svörtu hannað af Constance Guisset.

Stofan er falleg og björt.Fasteignaljósmyndun

Um er að ræða bjarta 122 fermetra hæð í litlu fjölbýlishúsi miðsvæðis í Hafnarfirði sem var byggt árið 1966. 

Eignin skiptist í forstofu, stóra stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, þvottahús og baðherbergi. Setustofa og borðstofa eru saman í opnu rými með fallegum stórum gluggum sem snúa inn að garðinum.

Nánari upplýsingar um eignina má finna á fasteignavef Vísis.

Í stofunni er hinn klassíski sófi Söderhamn frá IKEA í fallegu ljósu áklæði.Fasteignaljósmyndun
Stofa og borðstofa er í samliggjandi og opnu rými.Fasteignaljósmyndun
Eldhúsinnrétting er ljós með góðu skápaplássi.Fasteignaljósmyndun
Hjónaherbergi er rúmgott með skápum.Fasteignaljósmyndun
Baðherbergi er flísalagt með góðri viðarinnréttingu.Fasteignaljósmyndun

Heiður Ósk er einn færasti förðunarfræðingur landsins og hefur komið víða við í faginu. Árið 2022 festi hún og Ingunn Sigurðardóttir förðunarfræðingur, kaup á Reykjavík Makeup School sem útskrifar fjöldann allan af förðunarfræðingum árlega.

Nýverið gáfu þær út förðunarlínuna Chili In June sem þær hönnuðu frá grunni, framleiddar á Ítalíu.

Auk þess héldu þær úti förðunarþáttunum, Snyrtiborðið með HI beauty, sem sýndir voru á Lífinu á Vísi. Í þáttunum gáfu þær góð ráð tengd förðun og húðumhirðu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.