Lífið

For­seti Ísraels leggur mikla á­herslu á þátt­töku í Euro­vision

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Hin tvítuga Eden Golan mun flytja framlag Ísraels á Eurovision í Malmö í maí. Nema Ísraelar dragi sig úr keppni. 
Hin tvítuga Eden Golan mun flytja framlag Ísraels á Eurovision í Malmö í maí. Nema Ísraelar dragi sig úr keppni.  Eurovision

Isaac Herzog forseti Ísrael segir að landið verði að eiga fulltrúa í Eurovision í ár. Hann segir marga hatara vilja reka fulltrúa landsins af sviði.

Fram kemur í umfjöllun ísraelska miðilsins Times of Israel að um sé að ræða viðbrögð forsetans við fréttum af því að Samtök evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU) hafi það til skoðunar hvort texti í lagi Ísrael sé of pólitískur.

„Ég tel að það sé mikilvægt að Ísrael verði með í Eurovision og þátttakan er yfirlýsing því það eru hatarar sem vilja reka okkur af öllum sviðum,“ hefur ísraelski miðillinn eftir ísraelska forsetanum.

Í síðustu viku hótaði ísraelska sjónvarpsstöðin KAN því að draga sig úr keppni ef EBU kæmist á þá niðurstöðu að framlag þeirra October Rain væri of pólitískt. Lagið vísar með beinum hætti til árásar Hamas liða í suðurhluta Ísrael þann 7. október síðastliðinn þar sem rúmlega 1200 ísraelskra borgara létust.

Lagið er á ensku og verður sungið af rússnesk ættuðu söngkonunni Eden Golan. Tvær línur úr laginu verða á hebresku.

Meðal lína sem eru í laginu eru: „Það er ekkert loft eftir,“ og „Þau voru öll góð börn, hvert og eitt þeirra.“ Þá er einnig vísað til blóma í laginu og hefur verið fullyrt að þar sé í raun vísað til fallinna hermanna.

Forseti Ísrael er ekki eini stjórnmálamaður landsins sem hefur tjáð sig um málið en það hefur Miki Zohar menningar- og íþróttamálaráðherra Ísrael einnig gert. Hann hefur sagt möguleikann á því að Ísrael verði dæmt úr leik í keppninni „fáránlegan.“ Hann segir lagið October Rain endurspegla tilfinningar Ísraela þessa dagana. Það sé ekki pólitískt.

Áður hefur KAN sagt að forsvarsmenn stöðvarinnar eigi í viðræðum við forsvarsmenn EBU vegna málsins. 11. mars er lokadagur fyrir sjónvarpsstöðvar til þess að leggja fram sitt framlag til Eurovision.

KAN hefur ítrekað sagt að það standi ekki til að skipta um lag. Yrði það ekki samþykkt af EBU myndi KAN ekki eiga neinn annan kost en að draga sig úr keppni. Ísrael hefur unnið keppnina fjórum sinnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.