Maradonaslagurinn í járnum eftir jafntefli í Napolí 21. febrúar 2024 21:53 Það var hart barist á Ítalíu í kvöld. Vísir/Getty Það er allt galopið í einvígi Napoli og Barcelona eftir fyrri leik liðanna á Maradona-leikvanginum á Ítalíu í kvöld. Liðin mætast á ný eftir þrjár vikur á Spáni. Einvígi liðanna var það sem líklega flestir biðu spenntir eftir í 16-liða úrslitunum. Bæði lið hafa verið í brasi í titlvörn í heimalöndum sínum, Napoli þó öllu meiri en liðið er um miðja Serie A en Barcelona í 3. sæti La Liga. & .Lamine Yamal will become the youngest ever to play in a Champions League knockout stage game when Barça face Napoli.Yet another record pic.twitter.com/GQ2l38XfvS— B/R Football (@brfootball) February 21, 2024 Fyrri hálfleikur í leiknum í kvöld var markalaus og í raun frekar tíðindalítill. Barcelona var meira með boltann en sköpuðu sér ekki mikið af færum og lið Napoli var fremur dauft í sínum aðgerðum. Fyrsta markið kom hins vegar í upphafi síðari hálfleiks. Það skoraði markahrókurinn Robert Lewandowski á 60. mínútu þegar hann kláraði vel framhjá Alex Meret í marki heimamanna. Heimaliðið hresstist aðeins eftir þetta og jöfnunarmarkið kom fimmtán mínútum síðar. Lewandowski with his 93rd Champions League goal #UCL pic.twitter.com/KObcP7NoGf— UEFA Champions League (@ChampionsLeague) February 21, 2024 Victor Osimhen gerði þá afar vel í að halda Inigo Martines frá sér í teignum og var skyndilega einn á auðum sjó. Hann kláraði af öryggi fram hjá Marc-Andre Ter Stegen í marki Barcelona og staðan orðin 1-1. Napoli ógnaði meira síðustu mínúturnar en skapaði þó ekkert dauðafæri. Ilkay Gundogan átti skot rétt fyrir leikslok sem fór framhjá. Leikurinn fjaraði út og liðin sættust á skiptan hlut. Það er því allt í járnum fyrir síðari leik liðanna í Barcelona sem fer fram þann 12. mars. Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla
Mourinho heldur áfram að hella sér yfir dómara: „Þetta var skelfilegt. Hversu lengi var boltinn í leik?“