Fyllist mælirinn, þegar það verða tveir stungnir og báðir dauðir, áður en við förum að gera eitthvað viti í þessum málaflokki? Davíð Bergmann skrifar 21. febrúar 2024 08:31 Ég hef í alvörunni verið að velta þessu fyrir mér að undanförnu. Eftir að ég las greinina um ungu mennina í World Class á dögunum sem voru að gera allt vitlaust þar. Þar sem var grunur um hnífaburð og þessir sömu aðilar hafa komið ítrekað við sögu vegna hnífa og skotvopnaburðar hjá lögreglu að undanförnu. Það þurfti meira að segja að kalla til sérsveit vegna þeirra. Þá fór ég að velta fyrir mér hvert erum við komin í þessum málaflokki. Þegar menn á borð við Bjössa í world class og Jói fel ráða ekki við ástandið og það þarf að kalla til sérsveitina. Búum við í aumingja samfélagi, þar sem er ekki hægt að taka á málunum af festu, er það málið? Þar sem ofbeldismaður hefur orðið meira vægi en hinn almenni borgari er þetta veruleikinn og er hægt að sætta sig við það. Hvenær er komið nóg af röfli og tal um rannsóknir um hitt og þetta og samanburður við önnur lönd sem hefur ekkert gert fyrir okkur hingað til í þessum málaflokki, ætlum við í alvörunni að tala um þetta út í það óendanlega og hvenær er komið nóg. Ég nenni ekki lengur að vera í einhverju diplómatísku röfli heldur vil ég fara að tala um þetta á mannamáli. Það er orðið löngu tímabært að vera í raunheimi um þessa hluti og hætta að tala og fara að framkvæma. Hvenær ætlum að fara gera eitthvað að alvöru í málefnum ungra afbrotamanna hér á landi og þá meina ég að alvöru þegar það liggur ljóst fyrir að útköll sérsveitarinnar aukast til muna á milli ára vegna vopnaburðar? Staðreyndin er þessi að harkan er að aukast í undirheimunum og vopnaburður líka, þá duga engin vettlingatök lengur. Allur fréttaflutningur af svona málum hefur verið í áratugi í fyrirsagna stíl, svo deyr umræðan út á einum til tveimur dögum svo bíðum við eftir næsta áfalli og þá endurtekur sagan sig og hún skilar engu. Í fyrirsögninni spurði ég verða tveir að verða stungnir og báðir dauðir, áður en við förum að gera eitthvað viti í þessum málaflokki? Nei í alvörunni þeir eru þónokkrir nú þegar sem hafa verið stungnir og jafnvel látið lífið hvað á þetta að ganga lengi svona. Er ekki orðið löngu tímabært að vakna og gera það sem gera þarf til að stoppa þessa þróun að fullri alvöru. Ekki á lausnin eingöngu að felast í því að lögreglan fái rafbyssur og auknar forvirkar rannsóknarheimildir “njósnir” Er það eina svarið við þessum vanda dag. Í mínum huga nei. Það er nokkuð ljóst að við getum ekki beðið til ársins 2028-29 þegar nýja fangelsið á að vera risið með að gera eitthvað að viti í þessum málum. Það þarf að gera eitthvað að alvöru núna og helst í gær. Ég held að þolinmæði samfélagsins muni ekki vera til staðar til ársins 2028-29 ef þróun vopnaburðar eigi eftir að versna eins og tölur gefa til kynna af þessum svokölluð “sérfræðingum” sem ég held að séu í afskaplega takmörkuðum tengslum við þennan heim. Sjálfur er ég enn að bíða eftir því að Dómsmálaráðherra svari minni viðtals beðni sem ég óskaði eftir 11 desember 2023 akkúrat til að ræða þessi mál. Ég held að staðreyndin sé þessi það er engin einasti áhugi á þessu málaflokki. Velferðarnefnd þingsins sýnir þessu engan áhuga þó svo að ég hafi ítrekað sent þeim ákall um að taka á þessum málum. Við verðum að fara nálgast þennan málaflokki með nýrri nálgun það þarf engar lagabreytingar til, þetta rúmast innan 57.gr alm hegn. laga. Það sem vantar upp á hér á landi er viðhorfs breyting og skapa nýja hefð þegar það er verið að taka á ungum afbrotamönnum. Það er einmitt það sem fangelsismálastjóri hefur verið að kalla eftir síðustu ár. Hann talar um erfiða unga drengi sem þarf að sinna og taka á. Ég er ekki að endilega að tala um fangelsisvist heldur miklu frekar fræðslu og leiðbeiningu en ef það dugar ekki til, þarf að stífa ramman svo um munar um svona brotamenn. Dómsmálaráðherra í annað sinn er ég með ákall til þín að halda tveggja daga ráðstefnu um unga afbrota á aldrinum 15-24 ára. Þá getum kannski markað okkur stefnu eftir það í þessum málum að alvöru. Farið að taka á málunum eins og siðmenntaðar þjóðir gera. Við getum meira segja orðið í fararbroddi á heimsvísu í þessum málaflokki vegna þess að mannauðurinn og landið bíður upp á ótrúleg tækifæri í þessum efnum. Höfundur hefur unnið með olnbogabörnum samfélagsins í 30 ár og er núna starfsmaður Fjölsmiðjunnar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Davíð Bergmann Mest lesið Að kasta steinum úr glerhúsi Páll Steingrímsson Skoðun “Þú ert alltof of ung til að fá liðagigt” - Alþjóðlegur dagur liðagigtar Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Vegna meintra „föðurlandssvika og siðferðisleysis“ Gunnars Magnússonar Geir Sveinsson Skoðun Er samþykki barna túlkunaratriði? Ólöf Tara Harðardóttir Skoðun Trump og forsetatilskipanir Helga Dögg Sverrisdóttir Skoðun Loðnustofninn hruninn Björn Ólafsson Skoðun Halldór 01.02.2025 Halldór Áróðursstríð Ingu Eydís Hörn Hermannsdóttir Skoðun Janúarblús vinstristjórnarinnar Jens Garðar Helgason Skoðun Hlutverk í fjölskyldum Matthildur Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun “Þú ert alltof of ung til að fá liðagigt” - Alþjóðlegur dagur liðagigtar Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Að kasta steinum úr glerhúsi Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Býður grunnskólakerfið upp á öfuga hvatastýringu fyrir kennara? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Vegna meintra „föðurlandssvika og siðferðisleysis“ Gunnars Magnússonar Geir Sveinsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir gervigreindarbyltinguna? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Loðnustofninn hruninn Björn Ólafsson skrifar Skoðun Munum við upplifa enn eitt „mikla stökkið framávið“? Jason Steinþórsson skrifar Skoðun Starfa stjórnmálamenn ekki í þágu almennings?: Um „blaðamannablaður“ og „óvandaða falsfréttamiðla“ Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar Skoðun HA ég Hr. ráðherra? Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Trump og forsetatilskipanir Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar Skoðun Spörum með breyttri verðstefnu í lyfjamálum Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ómæld áhrif kjaradeilu kennara Anton Orri Dagsson skrifar Skoðun Hlutverk í fjölskyldum Matthildur Bjarnadóttir skrifar Skoðun Erfitt að treysta þegar upplifunin er að samfélagið forgangsraði ekki börnum Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Janúarblús vinstristjórnarinnar Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Skipbrot meðaltalsstöðugleikaleiðarinnar Aðalgeir Ásvaldsson skrifar Skoðun Áróðursstríð Ingu Eydís Hörn Hermannsdóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern vinnur þú? Sigurður Freyr Sigurðarson skrifar Skoðun Kostaboð Eydís Hörn Hermannsdóttir skrifar Skoðun Um kjaradeilu sveitarfélaga og kennara Inga Sigrún Atladóttir skrifar Skoðun Næring íþróttafólks: Þegar orkuna og kolvetnin skortir Birna Varðardóttir skrifar Skoðun Hvað næst RÚV? Hilmar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðir í sæng með kvótakóngum Björn Ólafsson skrifar Skoðun Glannalegt tal um gjaldþrot Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Bókvitið verður í askana látið! Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Læknis- og sjúkraþjálfunarfræði fyrir alla Eiríkur Kúld Viktorsson skrifar Skoðun Hvernig er hægt að semja við samninganefnd sem hefur engan skilning á starfi stéttarinnar sem hún er að semja við? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Birtingarmynd fortíðar í nútímanum Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Mun seðlabankastjóri standa við orð sín Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar Skoðun Þegar réttarkerfið bregst – hvað kostar það börnin? Anna María Ingveldur Larsen skrifar Sjá meira
Þú ert alltof of ung til að fá liðagigt” - Alþjóðlegur dagur liðagigtar Hrönn Stefánsdóttir Skoðun
Skoðun “Þú ert alltof of ung til að fá liðagigt” - Alþjóðlegur dagur liðagigtar Hrönn Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Vegna meintra „föðurlandssvika og siðferðisleysis“ Gunnars Magnússonar Geir Sveinsson skrifar
Skoðun Starfa stjórnmálamenn ekki í þágu almennings?: Um „blaðamannablaður“ og „óvandaða falsfréttamiðla“ Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Erfitt að treysta þegar upplifunin er að samfélagið forgangsraði ekki börnum Ragnheiður Stephensen skrifar
Skoðun Hvernig er hægt að semja við samninganefnd sem hefur engan skilning á starfi stéttarinnar sem hún er að semja við? Ragnheiður Stephensen skrifar
“Þú ert alltof of ung til að fá liðagigt” - Alþjóðlegur dagur liðagigtar Hrönn Stefánsdóttir Skoðun