Allt jafnt í Hollandi Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 20. febrúar 2024 22:00 Donyell Malen skoraði mark Dortmund gegn sínum gömlu félögum. Photo Prestige/Soccrates/Getty Images PSV og Dortmund gerðu 1-1 jafntefli er liðin mættust í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar EVrópu í knattspyrnu í kvöld. Gestirnir í Dortmund tóku forystuna á 24. mínútu þegar Donyell Malen kom boltanum í netið gegn sínum gömlu félögum eftir stoðsendingu frá Marcel Sabitzer. Boltinn hafði viðkomu í varnarmanni á leið sinni í netið, en það telur alveg jafn mikið og staðan því 0-1 þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja. Luuk de Jong jafnaði hins vegar metin fyrir heimamenn snemma í síðari hálfleik með marki úr vítaspyrnu eftir að Mats Hummels braut af sé innan vítateigs. Ekki urðu mörkin fleiri og niðurstaðan því 1-1 jafntefli. Liðin fara því með jafna stöðu inn í seinni leikinn sem fram fer í Þýskalandi þann 13. mars næstkomandi. Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla
Mourinho heldur áfram að hella sér yfir dómara: „Þetta var skelfilegt. Hversu lengi var boltinn í leik?“