Veruleg hlýindi og rigning í kortunum Jakob Bjarnar skrifar 12. febrúar 2024 10:38 Ferðamenn og auðvitað aðrir landsmenn, mega búast við verulegri rigningu og roki á laugardaginn, það er í Reykjavík. Á Akureyri verður stilltara á laugardag en 14 stiga hiti. vísir/vilhelm Gert er ráð fyrir verulegum hlýindum í lok vikunnar. „
Já, það stefnir til okkar hlýtt loft í lok vikunnar. Það er greinilegt eftir spánni og svo er að sjá hvort það hittir á okkur eða fer framhjá,“ segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur. Einar er íhaldssamur og vill ekki fara fjálglega með hugtök. Blaðamanni tókst því ekki að fá hann til að spá fyrir um asahláku en næstum því. Búist er við verulega hlýnandi veðri og talsverðum blota. Spákort Veðurstofunnar fyrir laugardag á hádegi. Samkvæmt spákortunum er gert ráð fyrir talsvert miklum hlýindum þegar líður á vikuna og á föstudaginn er gert ráð fyrir fimm stiga hita og einhverri rigningu. Það bætir í blotann því á laugardag verður komin, samkvæmt kortum veðurstofunnar, ausandi rigningu og 9 stiga hita í Reykjavík. Á Akureyri er gert ráð fyrir 14 stiga hita en þar verður stilltara meðan rok og rigning verður á sunnan og austanverðu landinu. Hvort þetta verður svikavor eins og í fyrra, þegar gróður vaknaði, svo fraus í allt og það voraði seint og illa … það verður bara að koma í ljós.
Veður Mest lesið „Þetta eru atburðir sem við höfum aldrei séð áður“ Innlent Svava Lydia komin í leitirnar Innlent Afsökunarbeiðni til Ólafar ekki í kortunum Innlent Segir afnám samsköttunar svik við kjósendur Innlent Kvikugangur frá Krýsuvík gæti náð inn í Heiðmörk Innlent Lýsa eftir Svövu Lydiu Innlent Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Erlent ÍR kveikti á skiltinu án leyfis Innlent Tímamót í opinberri heimsókn Höllu til Noregs Innlent Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Erlent Fleiri fréttir „Ekki leika þennan leik“ Félag atvinnurekenda svarar Ríkisendurskoðun Svava Lydia komin í leitirnar „Þetta eru atburðir sem við höfum aldrei séð áður“ Milljarðakrafa varði ekki sérstaklega mikilvæga hagsmuni Afsökunarbeiðni til Ólafar ekki í kortunum Logi í Úkraínu og markaðirnir rétta úr kútnum Myndavélarnar mikilvægar og upptökurnar góð sönnunargögn „Alvarlegt að saka ríkisendurskoðanda um að villa um fyrir Alþingi“ Norðurlöndin vinni með Bandaríkjunum svo þau fari ekki í „ranga átt“ Tímamót í opinberri heimsókn Höllu til Noregs ÍR kveikti á skiltinu án leyfis Vilja betri afkomutryggingu fyrir bændur sem verða fyrir uppskerutjóni Guðmundur Árni sækist eftir endurkjöri Segir afnám samsköttunar svik við kjósendur Tíðir Esjufarar hryggir vegna örlaga Steins Kvikugangur frá Krýsuvík gæti náð inn í Heiðmörk Tvímennir fangaklefar og frekara húsnæði til skoðunar til að leysa plássleysi Blés til skyndifundar vegna innflutnings gerviópíóða Stjórnarandstaðan gekk á dyr: Tekist á um þingskjalið í beinni Blóðbað, þingmenn ganga á dyr og ógnin við Reykjavík Forsetahjónin á leið til Noregs Lýsa eftir Svövu Lydiu Kristrún ein í framboði til formanns Bæjarstjóri og bæjarfulltrúi saka hvor aðra um brot á siðareglum „Það eru ekki skattahækkanir“ Hvalfjarðargöng lokuð vegna bilaðs bíls Áfrýja og stofna félag um réttinn til að mótmæla Munu ekki hlaupa síðustu metrana í Geirsgötu fyrr en 2026 Allir og amma þeirra keppast um að skilgreina „woke“ Sjá meira