Viðskipti innlent

Hjartapóstkassinn kominn upp

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Hjartalaga póstkassa hefur verið komið upp í Kringlunni.
Hjartalaga póstkassa hefur verið komið upp í Kringlunni. Aðsend

Það er falleg hefð á Valentínusardaginn að leggja sig fram um að gleðja ástina sína. Síðustu ár hefur Pósturinn aðstoðað Amor við á þessum degi og ekki veitir af þar sem hann er önnum kafinn. Á því verður engin undantekning í ár en verður þó gert með öðru sniði.

Hjartapóstkassinn verður á sínum stað í Kringlunni en hann mun gegna nýju hlutverki í ár. Pósturinn býður gestum að fylla út þátttökuseðil og stinga í hinn hjartalaga póstkassa þar sem þeim er boðið upp á að tilnefna manneskju sem þeim finnst eiga skilið að fá óvæntan Valentínusarglaðning heimsendan með Póstinum á Valentínusardaginn.

Vilborg Ásta Árnadóttir, markaðsstjóri Póstsins, segir hinn hjartalaga póstkassa táknrænan. „Síðustu ár höfum við svo sannarlega séð að í Íslendingum slær rómantískt hjarta en mörg hundruð manns hafa nýtt tækifærið og sent sjóðheitar ástarkveðjur með hjartapóstkassanum. Hann á vel við á þessum degi, tveir póstkassar renna saman í einn, mynda hjarta og við hugsum um ástarjátningar og hjörtu sem slá í takt."

Vilborg Ásta Árnadóttir, markaðsstjóri Póstsins.Aðsend

Valentínusarleikur Póstsins stendur yfir dagana tíunda til fjórtánda febrúar og er hann líka á stafrænu formi á öllum miðlum Póstsins.

 „Við hvetjum alla til að taka þátt í Valentínusarleiknum okkar, Hver fær þitt hjarta til að slá? Það eina sem þú þarft að gera er að tilnefna þá manneskju sem þú vilt gleðja á Valentínusardaginn, nafn hennar fer í pottinn og hún gæti átt von á óvæntum glaðningi í þínu nafni á sjálfan Valentínusardaginn. Við komum glaðningnum og kveðju frá þér til skila,“ segir Vilborg.

Hún segir viðeigandi að hafa póstkassann í Kringlunni því dagana 10.-18. febrúar standa yfir svokallaðir „Allt fyrir ástina“ dagar. Þar sé auk þess mikið líf í kringum Valentínusardaginn því margir geri sér ferð í verslanir til að kaupa gjöf handa ástvini fyrir þennan dag.

„Þegar rétta gjöfin hefur verið fundin og þú vilt koma ástinni vel á óvart er hægt að stinga henni í póstboxið í Kringlunni og við komum henni til elskunnar.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×