Lífið

Fimm fantaflottar miðbæjarperlur

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Í miðbæ Reykjavíkur má finna fjölda fallegra eigna í öllum stærðum og gerðum.
Í miðbæ Reykjavíkur má finna fjölda fallegra eigna í öllum stærðum og gerðum.

Í miðborg Reykjavíkur má finna fjölda eigna í öllum stærðum og gerðum. Sögufræg hús, nýjar eignir, lúxusíbúðir og allt þar á milli. Lífið á Vísi tók saman nokkrar eignir sem má finna í póstnúmeri 101.

Tignarlegt hús með aukinni lofthæð

Við Vesturgötu 54 a má finna glæsilega 127 fermetra íbúð á 1. hæð í húsi sem var byggt árið 1930. Eignin hefur fengið miklar endurbætur en heldur í gamla tíðarandan með rósettum í lofti, loftlistum og marmara á gólfum. Nánari upplýsingar hér.

Ásett verð er 96,9 milljónir.

Kristján
Kristján
Kristján
Kristján

Hönnunaríbúð við Hafnartorg

Við Tryggvagötu 23 má finna 163,8 fermetra íbúð á efstu hæð með þriggja metra lofthæð og stórkostlegu útsýni. Guðbjörg Magnúsdóttir innanhúshönnuður hannaði íbúðina og sá um efnisval.

Eignin skiptist í hjónasvítu með fataherbergi og rúmgóðu baðherbergi, stórt alrými sem skiptist í stofu, eldhús og borðstofu, svefnherbergi og baðherbergi, og tvennar svalir. Nánari upplýsingar hér.

Ásett verð er 197 milljónir.

Fasteignaljósmyndun
Fasteignaljósmyndun
Fasteignaljósmyndun
Fasteignaljósmyndun

Björt hæð í sögufrægu húsi

Við Vatnsstíg 3 B má finna fallega þriggja herberbergja íbúð í sögufrægu steinsteyptu húsi frá árinu 1929.

Mikil lofthæð og fallegir gluggar setja skemmtilegan svip á rýmið. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð af núverandi eigendum. Skipulagi hefur verið talsvert breytt frá samþykktum breytingum til að koma fyrir viðbótar svefnherbergi. Nánari upplýsingar hér. 

Ásett verð er 82,9 milljónir.

Fasteignaljósmyndun
Fasteignaljósmyndun
Fasteignaljósmyndun
Fasteignaljósmyndun

Nýstárleg og björt íbúð

Við Miðstræti 12 er glæsileg 78 fermetra íbúð með sérinngangi í steinsteyptu fjölbýlishúsi. Alls eru sex íbúðir eru í húsinu. Húsið er byggt árið 1924 í miðbæ Reykjavíkur og blandast því saman nútíma þægindi við gamla sögu. Eignin samanstendur af einu svefnberbergi, einu baðherbergi, eldhúsi, stofu, fataherbergi og geymslu.

Nánari upplýsingar hér.  Ásett verð er 65,9 milljónir.

Fasteignaljósmyndun
Fasteignaljósmyndun
Fasteignaljósmyndun
Fasteignaljósmyndun

Innflutt timburhús frá Noregi

Við Vesturgötu 41 stendur gamalt og reisulegt hús frá árinu 1889. Eignin er um 270 fermetrar að stærð og hefur fengið töluverðar endurbætur.

Húsið er innflutt timburhús frá Noregi á þremur hæðum auk kjallara á hlöðnum grunni, innflutt árið 1889 og klárað árið 1902 ásamt viðbyggingu frá árinu 1969. Alls eru níu svefnherbergi, tvær stofur, tvö eldhús og þrjú baðherbergi. Nánari upplýsingar hér. 

Ásett verð er 159 milljónir.

Fasteignaljósmyndun
Fasteignaljósmyndun
Fasteignaljósmyndun
Fasteignaljósmyndun
Fasteignaljósmyndun





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.