Lífið

Sigga Lund og Vala Ei­ríks kveðja Bylgjuna fullar þakk­lætis

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Ljóst er að hlustendur Bylgjunnar munu sakna Siggu og Völu sem spjölluðu mikið við hlustendur um allt land og sögur sem þeir höfðu að segja.
Ljóst er að hlustendur Bylgjunnar munu sakna Siggu og Völu sem spjölluðu mikið við hlustendur um allt land og sögur sem þeir höfðu að segja. Vísir/Hulda Margrét

Útvarpskonurnar Valdís Eiríksdóttir og Sigga Lund voru á meðal þeirra ellefu sem fengu uppsögn hjá Sýn í gær. Þær greina frá þessu í færslum á samfélagsmiðlum og taka uppsögninni af miklu æðruleysi.

Valdís, sem flestir þekkja sem Völu, segist kveðja Bylgjuna eftir níu ára platónskt ástarsamband. Hún hefur eðal annars verið á tökkunum í Bítinu undanfarin ár, sungið með Guðrúnu Árnýju á föstudögum í þætti Ívars Guðmundssonar, verið með hina ýmsu þætti og verið gestgjafi í sjónvarpsþáttunum Bylgjan órafmögnuð.

„Ég hef sinnt alls kyns störfum innan raða fyrirtækisins s.l. næstum því áratug, en tilvalið að hefja fertugsaldurinn á uppstokkun. Það var reyndar planið að kveðja á eigin forsendum eftir slétta viku, svo það er enginn heimsendir, betra ég en einhver annar,“ segir Vala.

Vala Eiríks kom, sá og sigraði í Allir geta dansað á Stöð 2.Vísir/Vilhelm

Hún segist ætla að skapa meira, leika sér og láta drauma sína rætast. Fólk muni heyra í henni á öðrum vettvangi fljótlega en fyrst fari hún í smá frí. Hún þakkar vinnufélögum fyrir lærdóminn, vináttuna en fyrst og fremst hlustendum sínum.

„Takk fyrir að hlusta á mig og vera með mér svona lengi. Þið eruð mér svo dýrmæt.“

Sigga segist ganga frá borði full þakklætis, þakklát fyrir Bylgjuna og tækifærin sem hún hafi fært henni.

„Þakklát fyrir allt fólkið sem ég hef fengið að vinna með, Þvílíkir snillingar. Þakklát fyrir hlustendur, sem eru svo langbestir,“ segir Sigga.

Sigga Lund er einhver brosmildasta kona landsins.Vísir/Vilhelm

„Ég er líka bara svo þakklát fyrir þennan kafla sem er lokið. Hann var athyglisverður og mjög svo lærdómsríkur. Hann gaf mér færi á að vaxa heilan helling. Ég hlakka til næsta kafla, og þeysi af stað hvergi banginn. Ég hef aldrei verið betri og ég veit það, það er herslumunurinn,“ segir Sigga og kveður vinnufélaga, gesti og hlustendur með þakklæti.

Fram kom á Vísi í gær að ellefu starfsmönnum Sýnar hefði verið sagt upp. Uppsagnirnar hefðu dreifst á svið fyrirtækisins.

Vísir er í eigu Sýnar.


Tengdar fréttir

Vala Eiríks og Óskar Logi nýtt par

Útvarpskonan með stóra brosið og útgeislunina Valdís Eiríksdóttir fann ástina í faðmi tónlistarmannsins Óskars Loga Ágústssonar úr Vintage Caravan.

Flúðu trúarof­beldi í sér­trúar­söfnuðum á Ís­landi

Mörg þúsund Íslendingar hafa tilheyrt sértrúarsöfnuðum. Ein sterkustu einkenni hópanna eru strangt skipulag, mikið kennivald og félagslegt taumhald sem er vaktað af valdamiklum leiðtoga. Fólk sem hættir í söfnuðunum upplifir flest depurð, kvíða og áfallastreitu eftir dvölina og mörg hafa orðið fyrir alvarlegu ofbeldi. Í Kompás köfum við ofan í hugtakið trúarofbeldi og ræðum við fyrrverandi meðlimi sértrúarsafnaða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.