Enski boltinn

Reiði­lestur Kea­ne um mjúka United menn stal fyrir­sögnunum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Roy Keane vinnur sem sérfræðingur í sjónvarpi en nú er hann alveg kominn með nóg af ástandinu hjá sínu gamla félagi.
Roy Keane vinnur sem sérfræðingur í sjónvarpi en nú er hann alveg kominn með nóg af ástandinu hjá sínu gamla félagi. Getty/Richard Sellers

Roy Keane, fyrrum fyrirliði Manchester United, stal fyrirsögnunum á baksíðum margra enskra blaða í morgun en hann hraunar þar yfir sitt gamla félag.

Keane segir miklu auðveldara að mæta United í dag heldur en hér á árum áður. Hann segir að félagið sé orðið ‚soft' eins og hann kallar það og að enginn andstæðingur óttist það lengur að spila á móti United.

Blöð eins og Daily Express, Daily Star og Daily Mirror slá þessu öll upp á baksíðum sínum í morgun.

Það er mikil pressa á knattspyrnustjóranum Erik ten Hag enda hefur liðið þegar tapað fjórtán leikjum í öllum keppnum á tímabilinu. Keane varð sjö sinnum enskur meistari með United undir stjórn Sir Alex Ferguson. Félagið hefur ekki orðið meistari síðan 2013.

„Þið eruð Manchester United og byrðin er á ykkur, meira að segja þegar þið erum á heimavelli. Sýnið vöðvana og það sem er mikilvægara látið andstæðinga ykkar óttast ykkur á ný. Þegar liðin mæta United í dag þá óttast þau ekki liðið lengur. Ég held að liðin hafi bara gaman af því að mæta á Old Trafford og njóta þess að spila þar,“ sagði Roy Keane.

„Þeir spila ekki saman sem lið og ég veit ekki hvort leikmenn séu hreinlega að kaupa hugmyndir knattspyrnustjórans. Þegar þú sérð United þá veistu ekki á hverju er von. Ég horfði á leik þeirra á móti Wigan í síðustu viku og bjóst við því að þeir gætu skorað fjögur eða fimm mörk,“ sagði Keane.

„Meira segja í þeim leik þurftu þeir vítaspyrnu til þess að koma boltanum yfir línuna. Þeir voru ekki góðir með boltann. Það er líka eins og þeir séu ekki nægilega miklir íþróttamenn,“ sagði Keane. Hann vill líka sjá meiri persónuleika frá knattspyrnustjóranum sem þykir með þeim þurrari í boltanum.

Hér fyrir neðan má sjá baksíður blaðanna í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×