Lífið

Fluttu úr mið­bænum í ein­staka náttúru­para­dís

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Heiðar Logi bjó áður í glæsilegri tveggja hæð íbúð við Laugaveg í miðbæ Reykjavíkur.
Heiðar Logi bjó áður í glæsilegri tveggja hæð íbúð við Laugaveg í miðbæ Reykjavíkur.

Heiðar Logi Elíasson brimbrettakappi og kærastan hans, Anný Björk Arnardóttir kvikmyndagerðarkona, fluttu nýverið úr miðbæ Reykjavíkur og festu kaup á sumarhúsi í landi Miðdals við Silungatjörn í Mosfellsbæ. Húsið er staðsett á 5000 fermetra eignarlóð með einstöku útsýni og veiðileyfi í tjörninni.

„Þetta svæði er búið að heilla mig í mörg ár. Ekkert endilega til að flýja Reykjavík heldur bara til að komast nær náttúrunni. Það er algjör draumur að geta keyrt innan við tíu mínútur út frá bæjarmörkum og verið kominn í algjöra kyrrð,“ segir Heiðar Logi.

Heiðar Logi er einn þekktasti brimbrettakappi landsins. Hann rekur einnig fyrirtækið Fasteignafegrun þar sem hann sérhæfir sig í hinu ýmsu viðhaldi fasteigna.

Húsið er staðsett á 5000 fermetra lóð við Seltjörn.
Gufa og ísbað hljómar ansi vel.

Eignin skiptist í 32 fermetra sumarhús, 15,8 fermetra gestahús og geymslu. Lóðin er afgirt að hluta og stendur húsið niður við vatnið í fallegum skógarlundi. 

Við húsið er rúmgóð timburverönd, heitur pottur með kamínu til upphitunar og saunatunna með útsýni yfir vatnið. 

Líkt og meðfylgjandi myndir gefa til kynna er svæðið sannkölluð náttúruparadís.

Heiðar Logi sagaði gat á tjörnina til að geta baðað sig.

Hér að neðan má sjá myndir teknar af fastinn.is

Remax
Remax
Remax
Remax
Remax
Remax
Remax

Tengdar fréttir

Heiðar Logi selur eina flottustu íbúð miðbæjarins

Brimbrettakappinn Heiðar Logi Elíasson hefur sett glæsilega íbúð sína við Laugaveg 40 til sölu. Um er að ræða rúmlega 80 fermetra eign á tveimur hæðum í fjölbýlishúsi sem var byggt árið 2004.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.