Enski boltinn

Arnór skoraði í jafn­tefli Blackburn

Dagur Lárusson skrifar
Arnór fagnar í búningi Blackburn.
Arnór fagnar í búningi Blackburn. Vísir/Getty

Arnór Sigurðsson og félagar í Blackburn gerðu 2-2 jafntefli við Rotherdam í Championship deildinni í dag.

Fyrir leikinn var Blackburn í sextánda sæti deildarinnar með 31 stig á meðan mótherjar þeirra í Rotherdam voru í neðsta sætinu.

Arnór skoraði fyrsta mark leiksins á 8. mínútu eftir að boltinn barst til hans inn á teig eftir darraðadans.

Liðsmenn Rotherdam náðu þó að jafna leikinn áður en flautað var til hálfleiks og var það Sean Morrison sem skoraði markið á 31. mínútu eftir undirbúning frá Sam Clucas.

Blackburn náði forystunni aftur strax í byrjun seinni hálfleiks á 46. mínútu og var það Sammie Szmodics sem skoraði markið.

 Allt stefndi í sigur Blackburn þar til á 82. mínútu þegar Tom Eaves skoraði og jafnaði metin í 2-2. Það reyndust lokatölur leiksins en eftir leikinn er Blackburn með 32 stig í sautjánda sætinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×