Skaut systur sína til bana eftir deilur um jólagjafir Atli Ísleifsson skrifar 27. desember 2023 08:27 Skammbyssan sem notuð var til að bana konunni. Lögreglustjórinn í Pinellas Lögregla í Bandaríkjunum hefur handtekið tvo bræður á táningsaldri eftir að systir þeirra var skotin til bana í kjölfar deilna um jólagjafir á heimili í Flórída.
Bandarískir fjölmiðlar segja að konan, sem var 23 ára, hafi verið skotin í bringuna af fjórtán ára bróður sínum þar sem hún hélt á tíu mánaða syni sínum í magapoka. Bob Gualtieri, lögreglustjóri í Pinellas-sýslu, segir að annar bróðir, sem er fimmtán ára, hafi þá tekið fram byssu sína og skotið bróður sinn. Sagði Gualtieri að til átakanna hafi komið í kjölfar deilna um hver hafi fengið fleiri jólagjafir. Konan var flutt á sjúkrahús þar sem hún var úrskurðuð látin, en barn hennar, sem var í magapokanum, slapp ómeitt. Sjá má upptöku af blaðamannafundi lögreglustjórans í Pinellas-sýslu að neðan. Gualtieri greindi frá því á fréttamannafundi að fimmtán ára bróðirinn hafi flúið af vettvangi og losað sig við byssuna, en yngri bróðirinn, fjórtán ára, hafi verið fluttur á sjúkrahús og er ástand hans sagt vera stöðugt. Hann verður færður í gæsluvarðhald þegar hann verður útskrifaður af sjúkrahúsi. Saksóknarar fara nú yfir gögn í málinu og þurfa að meta hvort yngri bróðirinn verði ákærður fyrir morð á systurinni. Eldri bróðirinn var handtekinn og er nú í haldi vagna gruns um tilraun til manndráps.
Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Mest lesið Ferðamenn lentu í vandræðum á bíl keyrðum 250 þúsund kílómetra Innlent Banaslys á byggingarsvæði á Akranesi Innlent Agnes segist niðurlægð og vill leita til dómsstóla Innlent „Fíaskó næturinnar“ gæti kallað á nýjan frambjóðanda Erlent Sofnaði eftir fjórtán mínútna akstur og olli banaslysi Innlent Dýrara að taka strætó til Hornafjarðar en að fljúga til Parísar Innlent Biden hikandi og hás í fyrri kappræðum kosninganna Erlent Ísklumpur féll á ferðamann Innlent Nýtt eldgos líklegt Innlent Flug frá Keflavík til Köben taki styttri tíma en meðaltími nauðgunar Innlent Fleiri fréttir „Fíaskó næturinnar“ gæti kallað á nýjan frambjóðanda Ævilangt fangelsi fyrir morðið og nauðganirnar Biden augljóslega þyngdur af ellibelgnum Sakfelldur fyrir að myrða Emilie Meng Þakið á flugvelli í Nýju Delí hrundi vegna mikillar rigningar Biden hikandi og hás í fyrri kappræðum kosninganna Bein útsending: „Óvinsælustu frambjóðendur sem boðið hefur verið upp á“ Tilnefna Ursulu til að sitja fimm ár í viðbót Færeysku og grænlensku bætt við Google Translate Trump getur ekki gripið fram í fyrir Biden í nótt Krafa um hraða vaxtalækkun og Tækniskólinn rís í Hafnarfirði Fyrstu kappræðurnar í fjögur ár gætu skipt sköpum Eldur kviknaði í ráðuneyti Vill varúðarmerkingar á gjörunna matvöru Herforingi handtekinn eftir valdaránstilraun Valdaránstilraunin virðist hafa mistekist Segir hermennina hafa traðkað á skotsárum sínum Óttast valdaránstilraun í Bólivíu Smellti rembingskossi á eiginkonuna við heimkomuna Staðfesta skipun Ruttes Óttast að nettröll tefji rannsókn með samsæriskenningum Assange frjáls og á leið til Ástralíu Fjórir handteknir við heimili Rishi Sunak Flytja inn sérhæfða leitarhunda í leitinni að Slater Refsivert að ganga í hjónaband með barni í Síerra Leóne Gerðu árásir á tvo skóla og heimili fjölskyldu Haniyeh Ekki vön því að tala um eiginmann sinn sem frjálsan mann Haldlögðu meira en tvö tonn af grasi og handtóku 42 Meðlimur úr öryggissveit Orbáns lést í bílslysi Sóttu sýni á fjarhlið tunglsins Sjá meira