Lög sem koma sér fyrir í hjörtum landsmanna Bylgjan órafmögnuð 22. nóvember 2023 10:05 Una Torfa flytur vinsælustu lög sín ásamt nokkrum óútgefnum lögum í Bæjarbíói. Myndir/Hulda Margrét. Næstu tónleikar í tónleikaröðinni Bylgjan órafmögnuð eru á morgun fimmtudag en þá mun Una Torfa flytja vinsælustu lög sín ásamt nokkrum óútgefnum lögum milli þess sem hún spjallar á léttu nótunum við Völu Eiríks. „Mér fannst mjög huggulegt að hafa einhvern til að spjalla við á sviðinu,“ segir Una. „Ég á það til að tala lengi á milli laga og verð stundum óviss um hvort ég sé búin að tala of lengi. Með Völu þarna hjá mér var stemningsábyrgðinni dreift aðeins betur sem var mjög gott.“ Milli laga spjallaði Una Torfa við Völu Eiríks, útvarpskonu á Bylgjunni. Bylgjan órafmögnuð hófst á Bylgjunni, Vísi og sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísi í upphafi mánaðarins en þetta er þriðja árið í röð sem tónleikaröðin er haldin. Búið er að taka alla tónleikana upp sem fóru fram í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Eins og fyrr segir mun Una flytja þekktari lög sín í bland við óútgefið efni. „Ég á þó nokkuð af óútgefnu efni sem mér finnst gaman að flytja, sérstaklega þegar ég kem ein fram með gítarinn. Þegar ég setti saman lagalista kvöldsins reyndi ég því að finna gott jafnvægi á milli laga sem fólk þekkir og svo óútgefinna laga sem njóta sín vel í svona lágstemmdum flutningi.“ Una hefur komið ansi sterkt inn í íslenskt tónlistarlíf á skömmum tíma. Hvernig tilfinning skyldi það vera að ná svo miklum vinsældum á frekar stuttum tíma? „Það er bara algjör rússíbani. Ég er svo þakklát og hamingjusöm og samtímis er ég að venjast því að lífið mitt er búið að breytast mjög mikið mjög hratt. Það er alltaf smá áskorun. Mér þykir mjög vænt um það að lögin mín séu að koma sér fyrir í hjörtum landsmanna, það gleður mig meira en orð fá lýst.“ Gestir fjölmenntu og skemmtu sér vel á tónleikunum með Unu Torfa í Bæjarbíói. Og það eru sannarlega spennandi tímar framundan hjá þessari ungu tónlistarkonu. „Á næsta ári gef ég út plötu í fullri lengd og ýmis önnur spennandi verkefni taka við eftir áramótin. Lífið er endalaus óvissuferð og veisla og ég býð fólk bara velkomið með mér.“ Það voru Jóhanna Guðrún, Klara Elías og Friðrik Dór sem komu fram á fyrstu þremur tónleikunum í tónleikaröðinni. Næsta fimmtudag heldur Ragga Gísla tónleika og Jónas Sig í vikunni þar á eftir. Lokaþátturinn er sérstakur jólaþáttur sem sýndur verður 16. desember. Næstu tónleikar í tónleikaröðinni Bylgjan órafmögnuð: 30. nóvember: Ragga Gísla 7. desember: Jónas Sig 16. desember: Jólaþáttur með öllum söngvurunum Allir tónleikar í tónleikaröðin Bylgjan órafmögnuð hefjast á kl. 20 á Bylgjunni, Vísi og sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísi. Hér er hægt að skoða eldri upptökur frá Bylgjan órafmögnuð. Bylgjan Bylgjan órafmögnuð Tónlist Tengdar fréttir Friðrik Dór söng sín fallegustu lög Friðrik Dór var þriðji söngvarinn sem steig á svið í tónleikaröðinni Bylgjan órafmögnuð sem er á dagskrá á Bylgjunni og Stöð 2 Vísi næstu 4 fimmtudagskvöld klukkan 20:00. 16. nóvember 2023 17:17 Órafmögnuð og notaleg stund með Bylgjunni Tónleikaröðin Bylgjan órafmögnuð hófst á Bylgjunni, Vísi og sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísi í upphafi mánaðarins. Stórsöngkonan Jóhanna Guðrún reið á vaðið og viku síður koma Klara Elías fram en allir tónleikar fara fram í Bæjarbíói í Hafnarfirði. 15. nóvember 2023 12:24 Bylgjan órafmögnuð: Klara Elías syngur frá hjartanu Klara Elías er önnur söngkonan sem stígur á svið í tónleikaröðinni Bylgjan órafmögnuð sem er á dagskrá á Bylgjunni og Stöð 2 Vísi næstu sex fimmtudagskvöld. 9. nóvember 2023 19:30 Bylgjan órafmögnuð: Jóhanna Guðrún Jóhanna Guðrún er fyrsta söngkonan sem kemur fram á tónleikaröðinni Bylgjan órafmögnuð sem verður á dagskrá næstu sjö fimmtudagskvöld. 2. nóvember 2023 19:31 Mest lesið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til Lífið Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Lífið Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru Lífið Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Lífið Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Lífið Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Lífið „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Menning Fleiri fréttir Ný vetrarlína Moomin væntanleg í takmörkuðu upplagi „Bio-Kult er eitt af því sem er alltaf til á okkar heimili“ Bragi Páll og Bergþóra með hryllilega fyndnar hrekkjavökusögur Ný eldhúslína sem sækir innblástur í náttúruna Sprite Zero Klan gefur út SS pylsulagið í fullri lengd Tilkoma Neubria leikbreytir að sögn Bergsveins Náttúruleg leið til að endurbæta meltinguna! Um 12.000 manns hafa séð sýninguna Orð gegn orði í Þjóðleikhúsinu MZ Skin – Lúxus húðvörur sem byggja á vísindum og fagurfræði Þetta þurfum við í útihlaupin í vetur Osteostrong á erindi við alla aldurshópa Sprenghlægilegur gamanleikur frumsýndur í október í Þjóðleikhúsinu Fólk öðlast frelsi og hugarró og sumir jafnvel nýtt líf Heitustu haust- og vetrartrendin 2024 Inga Lilý hlaut aðalvinninginn í ár Hefur tekið Nutrilenk í 20 ár og gæti ekki án þess verið Getur hundur hjálpað mér að reima? - Ráðstefna um dýr í starfi með fólki Fallegur golfvöllur á sögulegum slóðum Aldrei haft jafn þykkt hár Eva Ruza skipuleggur húðrútínu sína með L´Oréal Paris Skemmtilegur golfvöllur umkringdur stórkostlegri náttúru Sjá meira
„Mér fannst mjög huggulegt að hafa einhvern til að spjalla við á sviðinu,“ segir Una. „Ég á það til að tala lengi á milli laga og verð stundum óviss um hvort ég sé búin að tala of lengi. Með Völu þarna hjá mér var stemningsábyrgðinni dreift aðeins betur sem var mjög gott.“ Milli laga spjallaði Una Torfa við Völu Eiríks, útvarpskonu á Bylgjunni. Bylgjan órafmögnuð hófst á Bylgjunni, Vísi og sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísi í upphafi mánaðarins en þetta er þriðja árið í röð sem tónleikaröðin er haldin. Búið er að taka alla tónleikana upp sem fóru fram í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Eins og fyrr segir mun Una flytja þekktari lög sín í bland við óútgefið efni. „Ég á þó nokkuð af óútgefnu efni sem mér finnst gaman að flytja, sérstaklega þegar ég kem ein fram með gítarinn. Þegar ég setti saman lagalista kvöldsins reyndi ég því að finna gott jafnvægi á milli laga sem fólk þekkir og svo óútgefinna laga sem njóta sín vel í svona lágstemmdum flutningi.“ Una hefur komið ansi sterkt inn í íslenskt tónlistarlíf á skömmum tíma. Hvernig tilfinning skyldi það vera að ná svo miklum vinsældum á frekar stuttum tíma? „Það er bara algjör rússíbani. Ég er svo þakklát og hamingjusöm og samtímis er ég að venjast því að lífið mitt er búið að breytast mjög mikið mjög hratt. Það er alltaf smá áskorun. Mér þykir mjög vænt um það að lögin mín séu að koma sér fyrir í hjörtum landsmanna, það gleður mig meira en orð fá lýst.“ Gestir fjölmenntu og skemmtu sér vel á tónleikunum með Unu Torfa í Bæjarbíói. Og það eru sannarlega spennandi tímar framundan hjá þessari ungu tónlistarkonu. „Á næsta ári gef ég út plötu í fullri lengd og ýmis önnur spennandi verkefni taka við eftir áramótin. Lífið er endalaus óvissuferð og veisla og ég býð fólk bara velkomið með mér.“ Það voru Jóhanna Guðrún, Klara Elías og Friðrik Dór sem komu fram á fyrstu þremur tónleikunum í tónleikaröðinni. Næsta fimmtudag heldur Ragga Gísla tónleika og Jónas Sig í vikunni þar á eftir. Lokaþátturinn er sérstakur jólaþáttur sem sýndur verður 16. desember. Næstu tónleikar í tónleikaröðinni Bylgjan órafmögnuð: 30. nóvember: Ragga Gísla 7. desember: Jónas Sig 16. desember: Jólaþáttur með öllum söngvurunum Allir tónleikar í tónleikaröðin Bylgjan órafmögnuð hefjast á kl. 20 á Bylgjunni, Vísi og sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísi. Hér er hægt að skoða eldri upptökur frá Bylgjan órafmögnuð.
Næstu tónleikar í tónleikaröðinni Bylgjan órafmögnuð: 30. nóvember: Ragga Gísla 7. desember: Jónas Sig 16. desember: Jólaþáttur með öllum söngvurunum
Bylgjan Bylgjan órafmögnuð Tónlist Tengdar fréttir Friðrik Dór söng sín fallegustu lög Friðrik Dór var þriðji söngvarinn sem steig á svið í tónleikaröðinni Bylgjan órafmögnuð sem er á dagskrá á Bylgjunni og Stöð 2 Vísi næstu 4 fimmtudagskvöld klukkan 20:00. 16. nóvember 2023 17:17 Órafmögnuð og notaleg stund með Bylgjunni Tónleikaröðin Bylgjan órafmögnuð hófst á Bylgjunni, Vísi og sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísi í upphafi mánaðarins. Stórsöngkonan Jóhanna Guðrún reið á vaðið og viku síður koma Klara Elías fram en allir tónleikar fara fram í Bæjarbíói í Hafnarfirði. 15. nóvember 2023 12:24 Bylgjan órafmögnuð: Klara Elías syngur frá hjartanu Klara Elías er önnur söngkonan sem stígur á svið í tónleikaröðinni Bylgjan órafmögnuð sem er á dagskrá á Bylgjunni og Stöð 2 Vísi næstu sex fimmtudagskvöld. 9. nóvember 2023 19:30 Bylgjan órafmögnuð: Jóhanna Guðrún Jóhanna Guðrún er fyrsta söngkonan sem kemur fram á tónleikaröðinni Bylgjan órafmögnuð sem verður á dagskrá næstu sjö fimmtudagskvöld. 2. nóvember 2023 19:31 Mest lesið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til Lífið Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Lífið Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru Lífið Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Lífið Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Lífið Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Lífið „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Menning Fleiri fréttir Ný vetrarlína Moomin væntanleg í takmörkuðu upplagi „Bio-Kult er eitt af því sem er alltaf til á okkar heimili“ Bragi Páll og Bergþóra með hryllilega fyndnar hrekkjavökusögur Ný eldhúslína sem sækir innblástur í náttúruna Sprite Zero Klan gefur út SS pylsulagið í fullri lengd Tilkoma Neubria leikbreytir að sögn Bergsveins Náttúruleg leið til að endurbæta meltinguna! Um 12.000 manns hafa séð sýninguna Orð gegn orði í Þjóðleikhúsinu MZ Skin – Lúxus húðvörur sem byggja á vísindum og fagurfræði Þetta þurfum við í útihlaupin í vetur Osteostrong á erindi við alla aldurshópa Sprenghlægilegur gamanleikur frumsýndur í október í Þjóðleikhúsinu Fólk öðlast frelsi og hugarró og sumir jafnvel nýtt líf Heitustu haust- og vetrartrendin 2024 Inga Lilý hlaut aðalvinninginn í ár Hefur tekið Nutrilenk í 20 ár og gæti ekki án þess verið Getur hundur hjálpað mér að reima? - Ráðstefna um dýr í starfi með fólki Fallegur golfvöllur á sögulegum slóðum Aldrei haft jafn þykkt hár Eva Ruza skipuleggur húðrútínu sína með L´Oréal Paris Skemmtilegur golfvöllur umkringdur stórkostlegri náttúru Sjá meira
Friðrik Dór söng sín fallegustu lög Friðrik Dór var þriðji söngvarinn sem steig á svið í tónleikaröðinni Bylgjan órafmögnuð sem er á dagskrá á Bylgjunni og Stöð 2 Vísi næstu 4 fimmtudagskvöld klukkan 20:00. 16. nóvember 2023 17:17
Órafmögnuð og notaleg stund með Bylgjunni Tónleikaröðin Bylgjan órafmögnuð hófst á Bylgjunni, Vísi og sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísi í upphafi mánaðarins. Stórsöngkonan Jóhanna Guðrún reið á vaðið og viku síður koma Klara Elías fram en allir tónleikar fara fram í Bæjarbíói í Hafnarfirði. 15. nóvember 2023 12:24
Bylgjan órafmögnuð: Klara Elías syngur frá hjartanu Klara Elías er önnur söngkonan sem stígur á svið í tónleikaröðinni Bylgjan órafmögnuð sem er á dagskrá á Bylgjunni og Stöð 2 Vísi næstu sex fimmtudagskvöld. 9. nóvember 2023 19:30
Bylgjan órafmögnuð: Jóhanna Guðrún Jóhanna Guðrún er fyrsta söngkonan sem kemur fram á tónleikaröðinni Bylgjan órafmögnuð sem verður á dagskrá næstu sjö fimmtudagskvöld. 2. nóvember 2023 19:31