Lífið samstarf

Lög sem koma sér fyrir í hjörtum lands­manna

Bylgjan órafmögnuð
Una Torfa flytur vinsælustu lög sín ásamt nokkrum óútgefnum lögum í Bæjarbíói.  Myndir/Hulda Margrét.
Una Torfa flytur vinsælustu lög sín ásamt nokkrum óútgefnum lögum í Bæjarbíói.  Myndir/Hulda Margrét.

Næstu tónleikar í tónleikaröðinni Bylgjan órafmögnuð eru á morgun fimmtudag en þá mun Una Torfa flytja vinsælustu lög sín ásamt nokkrum óútgefnum lögum milli þess sem hún spjallar á léttu nótunum við Völu Eiríks.

„Mér fannst mjög huggulegt að hafa einhvern til að spjalla við á sviðinu,“ segir Una. „Ég á það til að tala lengi á milli laga og verð stundum óviss um hvort ég sé búin að tala of lengi. Með Völu þarna hjá mér var stemningsábyrgðinni dreift aðeins betur sem var mjög gott.“

Milli laga spjallaði Una Torfa við Völu Eiríks, útvarpskonu á Bylgjunni.

Bylgjan órafmögnuð hófst á Bylgjunni, Vísi og sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísi í upphafi mánaðarins en þetta er þriðja árið í röð sem tónleikaröðin er haldin. Búið er að taka alla tónleikana upp sem fóru fram í Bæjarbíói í Hafnarfirði.

Eins og fyrr segir mun Una flytja þekktari lög sín í bland við óútgefið efni. „Ég á þó nokkuð af óútgefnu efni sem mér finnst gaman að flytja, sérstaklega þegar ég kem ein fram með gítarinn. Þegar ég setti saman lagalista kvöldsins reyndi ég því að finna gott jafnvægi á milli laga sem fólk þekkir og svo óútgefinna laga sem njóta sín vel í svona lágstemmdum flutningi.“

Una hefur komið ansi sterkt inn í íslenskt tónlistarlíf á skömmum tíma. Hvernig tilfinning skyldi það vera að ná svo miklum vinsældum á frekar stuttum tíma?

„Það er bara algjör rússíbani. Ég er svo þakklát og hamingjusöm og samtímis er ég að venjast því að lífið mitt er búið að breytast mjög mikið mjög hratt. Það er alltaf smá áskorun. Mér þykir mjög vænt um það að lögin mín séu að koma sér fyrir í hjörtum landsmanna, það gleður mig meira en orð fá lýst.“

Gestir fjölmenntu og skemmtu sér vel á tónleikunum með Unu Torfa í Bæjarbíói. 

Og það eru sannarlega spennandi tímar framundan hjá þessari ungu tónlistarkonu. „Á næsta ári gef ég út plötu í fullri lengd og ýmis önnur spennandi verkefni taka við eftir áramótin. Lífið er endalaus óvissuferð og veisla og ég býð fólk bara velkomið með mér.“

Það voru Jóhanna Guðrún, Klara Elías og Friðrik Dór sem komu fram á fyrstu þremur tónleikunum í tónleikaröðinni. Næsta fimmtudag heldur Ragga Gísla tónleika og Jónas Sig í vikunni þar á eftir. Lokaþátturinn er sérstakur jólaþáttur sem sýndur verður 16. desember.

Næstu tónleikar í tónleikaröðinni Bylgjan órafmögnuð:

30. nóvember: Ragga Gísla

7. desember: Jónas Sig

16. desember: Jólaþáttur með öllum söngvurunum

Allir tónleikar í tónleikaröðin Bylgjan órafmögnuð hefjast á kl. 20 á Bylgjunni, Vísi og sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísi.

Hér er hægt að skoða eldri upptökur frá Bylgjan órafmögnuð.


Tengdar fréttir

Friðrik Dór söng sín fallegustu lög

Friðrik Dór var þriðji söngvarinn sem steig á svið í tónleikaröðinni Bylgjan órafmögnuð sem er á dagskrá á Bylgjunni og Stöð 2 Vísi næstu 4 fimmtudagskvöld klukkan 20:00. 

Óraf­mögnuð og nota­leg stund með Bylgjunni

Tónleikaröðin Bylgjan órafmögnuð hófst á Bylgjunni, Vísi og sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísi í upphafi mánaðarins. Stórsöngkonan Jóhanna Guðrún reið á vaðið og viku síður koma Klara Elías fram en allir tónleikar fara fram í Bæjarbíói í Hafnarfirði.

Bylgjan órafmögnuð: Jóhanna Guðrún

Jóhanna Guðrún er fyrsta söngkonan sem kemur fram á tónleikaröðinni Bylgjan órafmögnuð sem verður á dagskrá næstu sjö fimmtudagskvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.