Lífið

Jimmy Kimmel kynnir enn og aftur Óskarinn

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Kimmel kynnti Óskarsverðlaunin á þessu ári. 
Kimmel kynnti Óskarsverðlaunin á þessu ári.  EPA

Sjónvarpsmaðurinn Jimmy Kimmel, sem stýrir spjallþáttunum Jimmy Kimmel Live, verður kynnir á Óskarsverðlaununum sem haldin verða í mars á næsta ári. 

Tilkynnt var í dag að Kimmel hefði nú undirritað samning sem sneri að verkefni hans sem kynni á hátíðinni, sem verður haldin í 96. skiptið sunnudaginn 10. mars næstkomandi. 

Hann kynnti verðlaunin árin 2017, 2018 og í ár. Eiginkona hans, Molly McNearney, mun aftur sjá um að framleiða útsendinguna. Hún framleiðir einnig þættina Jimmy Kimmel Live! og kemur að því að skrifa þættina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.