Skoðun

Á­skorun til þing­manna - Treystið þjóðinni!

Jóna Benediktsdóttir skrifar

Stjórnarskrárfélagið skorar á þingmenn allra flokka á Alþingi að styðja og setja nafn sitt við framkomið frumvarp til stjórnarskipunarlaga um breytingu á núgildandi stjórnarskrá. Nánar tiltekið, þingskjal 404 - 392. mál, sem dreift var 19.10 2023. Þar er lagt til lýðræðislegra fyrirkomulag við breytingu á stjórnarskrá með því að 1. mgr. 79. gr.

stjórnarskrárinnar orðist svo:

„Þegar Alþingi hefur samþykkt frumvarp til breytinga eða viðauka á stjórnarskrá þessari skal það borið undir atkvæði allra kosningarbærra manna í landinu til samþykktar eða synjunar. Atkvæðagreiðslan skal fara fram í fyrsta lagi einum mánuði og í síðasta lagi þremur mánuðum eftir samþykkt frumvarpsins á Alþingi.“ — Sjá frumvarpið hér.

Rúm ellefu ár eru liðin síðan Alþingi boðaði til þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur að nýrri stjórnarskrá. Svar þjóðarinnar var afdráttarlaust.

Yfirgnæfandi meiri hluti samþykkti að þær tillögur skyldu verða grundvöllur nýrrar stjórnarskrár lýðveldisins Íslands. Líkt og fram kemur í greinargerð með umræddu frumvarpi gerir breytingin sem lögð er til ólíklegra að fjögur ár áframhaldandi stöðnunar í stjórnarskrármálinu taki við eftir næstu alþingiskosningar. Ætla verður að allflestir þingmenn — hvar í flokki sem þeir standa — geti fallist á og stutt tilgang frumvarpsins, eins og honum er lýst í greinargerð:

„Frumvarpi þessu er ætlað tvíþætt hlutverk. Annars vegar skuli lögfest leið til að breyta stjórnarskránni sem er mun lýðræðislegri en mælt er fyrir um nú. Undirstrikað verði skýrt og skorinort að almenningur sé stjórnarskrárgjafi og eigi ætíð síðasta orðið í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Hins vegar vona flutningsmenn að sú leið til stjórnarskrárbreytinga sem hér er lögð til komi í veg fyrir að Alþingi festist í þrátefli um breytingar í framtíðinni. Undanfarinn áratug hefur verið gerð stórmerkileg en oft og tíðum brokkgeng tilraun til heildarendurskoðunar stjórnarskrárinnar á grundvelli vinnu stjórnlagaráðs. Frumvarp þetta getur verið varða á þeirri leið. Verði það að lögum hefur Alþingi þau verkfæri sem þarf til að gera nauðsynlegar breytingar á stjórnarskránni í markvissari skrefum en því hefur auðnast.“

Stjórnarskrárfélagið hefur frá því síðastliðið vor hvatt til þess að stjórnmálaflokkar á þingi taki sig saman um breytingu á stjórnarskrá sem umrætt frumvarp felur í sér. Við höldum áfram.

F. h. Stjórnarskrárfélagsins,

Jóna Benediktsdóttir, formaður, Hjörtur Hjartarson, Katrín Oddsdóttir, Kjartan Jónsson, Kristín Erna Arnardóttir, Sigríður Ólafsdóttir, Þórir Baldursson.




Skoðun

Skoðun

Þorpið

Alina Vilhjálmsdóttir skrifar

Sjá meira


×