Erlent

Enn ein á­sökunin á hendur Brand

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Mál Russell Brand, grínista og leikara, hefur verið til rannsóknar síðan í september. 
Mál Russell Brand, grínista og leikara, hefur verið til rannsóknar síðan í september.  Getty/Lester Cohen

Leikarinn Russell Brand stendur enn einu sinni frammi fyrir ásökun um kynferðisbrot. Aukaleikari sakar hann um kynferðislega áreitni við upptökur á kvikmynd árið 2010. 

Brand er sakaður um að hafa, við upptökur gamanmyndarinnar Arthur, berað sig fyrir konu sem lék aukahlutverk í myndinni. Síðar hafi hann elt hana inn á salernið á tökustaðnum og beitt hana kynferðisofbeldi.

Konan hefur nú höfðað einkamál gegn honum fyrir bandarískum dómstólum og undir nafnleynd. Hún segir leikarann hafa verið sýnilega undir áhrifum áfengis þegar brotið átti sér stað í júlí 2010. Þá hafi meðlimur í framleiðsluteyminu staðið vörð um baðherbergisdyrnar meðan Brand misnotaði hana. 

Fjórar breskar konur stigu fram í september og sökuðu Brand um kynferðislega áreitni og andlegt ofbeldi ydir sjö ára tímabil, frá 2006 til 2013. Þá var leikarinn kærður til lögreglu nokkrum dögum síðar fyrir kynferðisbrot sem hann á að hafa framið árið 2003. 

Brand hefur neitað allri sök í þeim málum. Hann á enn eftir að bregðast við einkamálinu sem nú hefur verið höfðað. 

Breska rannsóknarlögreglan Scotland Yard rannsakar nú meint brot hans. Til rannsóknar eru bæði ásakanir um ofbeldi sem á að hafa átt sér stað á breskri grundu og annars staðar.


Tengdar fréttir

Tjáir sig í fyrsta sinn eftir á­sakanirnar

Leikarinn Russell Brand segir síðastliðna viku hafa verið „stórfurðulega og erfiða.“ Fjórar konur stigu nýlega fram og sögðu hann hafa brotið á sér kynferðislega. Ein þeirra hefur kært hann fyrir kynferðisbrot.

Skora á konur að stíga fram

Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa skorað á konur að stíga fram ef þær þurfi vegna mögulegrar óviðeigandi hegðunar breska grínistans Russell Brand á meðan hann tók þátt í góðgerðarviðburðum samtakanna frá 2006 til 2012. BBC barst kvartanir vegna grínistans á þessum árum en brást ekki við.

YouTu­be lokar á aug­lýsingar hjá Rus­sell Brand

YouTube hefur brugðist við þeim ásökunum um kynferðisofbeldi sem nú beinast að breska grínistanum, leikaranum og heilsugúrúnum Russell Brand með því að loka á auglýsingar á reikningum hans á YouTube.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×