Tónlist

Bylgjan órafmögnuð: Jóhanna Guð­rún

Boði Logason skrifar
Jóhanna Guðrún segir skemmtilegar sögur á milli laga í tónleikaröðinni Bylgjan órafmögnuð.
Jóhanna Guðrún segir skemmtilegar sögur á milli laga í tónleikaröðinni Bylgjan órafmögnuð. Hulda Margrét

Jóhanna Guðrún er fyrsta söngkonan sem kemur fram á tónleikaröðinni Bylgjan órafmögnuð sem verður á dagskrá næstu sjö fimmtudagskvöld.

Söngkonan fer á kostum á tónleikunum og syngur margar af sínum frægustu perlum í bland við önnur lög. Á milli laga segir hún í spjalli við Völu Eiríks skemmtilegar sögur frá ferlinum. 

Meðal annars hvernig það kom til að hún var fengin til að syngja Mamma þarf að djamma með Baggalút og söguna á bakvið Is it true? ævintýrið árið 2009.

Hægt er að horfa á tónleikana í spilaranum hér fyrir neðan og á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísi í myndlykli. 

Þá er einnig hægt að hlusta á þá á Bylgjunni. Tónleikarnir byrjuðu klukkan 20:00.

Næstu sjö fimmtudagskvöld verða tónleikar á dagskrá hér á Vísi, Stöð 2 Vísi og á Bylgjunni. 

Dagskrána má sjá hér fyrir neðan.

  • 2. nóvember: Jóhanna Guðrún
  • 9. nóvember: Klara Elias
  • 16. nóvember: Friðrik Dór
  • 23. nóvember: Una Torfa
  • 30. nóvember: Ragga Gísla
  • 7. desember: Jónas Sig
  • 16. desember: Jólaþáttur með öllum söngvurunum

Myndir frá tónleikunum má sjá hér fyrir neðan:

Mikið stuð var á tónleikunum og voru áhorfendur alsælir.Hulda Margrét
Hæfileikaríkar mæðgur. Dóttir Jóhönnu Guðrúnar raddaði fyrir mömmu sína.Hulda Margrét
Dóttir Jóhönnu Guðrúnar söng lag með mömmu sinni.Hulda Margrét
Jóhanna Guðrún er án efa ein vinsælasta söngkona landsins. Hulda Margrét
Áhorfendur nutu söngsins og sagnanna á milli laga.Hulda Margrét
Jóhanna Guðrún sagði skemmtilegar sögur á milli laga.Hulda Margrét
Tónleikarnir voru teknir upp í Bæjarbíói í Hafnarfirði.Hulda Margrét
Þessar systur voru sælar og glaðar með tónleikana.Hulda Margrét
Órafmagnaðir Bylgjutónleikar 2023.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.