Innlent

Þolendum mansals fjölgar stöðugt og þörf á vitundarvakningu

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Jenný Kristín Valberg teymisstjóri hjá Bjarkarhlíð segir þurfa að samhæfa störf þeirra sem koma að mansalsmálum. Þá séu opinberar tölur aðeins toppurinn á ísjakanum.
Jenný Kristín Valberg teymisstjóri hjá Bjarkarhlíð segir þurfa að samhæfa störf þeirra sem koma að mansalsmálum. Þá séu opinberar tölur aðeins toppurinn á ísjakanum. Vísir/Einar

Íslensk stjórnvöld eru gagnrýnd fyrir lélegan árangur í mansalsmálum í nýrri úttekt. Á sama tíma eru tilkynningar um mansal orðnar þriðjungi fleiri á þessu ári en samanlagt síðustu tvö ár. Teymisstjóri fyrir þolendur ofbeldis grunar að málin séu miklu fleiri. 

Greta, nefnd á vegum Evrópuráðsins sendir stjórnvöldum tóninn í þriðju úttekt sinni um stöðu mansalsmála hér á landi sem birtist í morgun. 

Nefndin hefur áhyggjur af takmörkuðum árangri stjórnvalda í baráttunni gegn vinnumansali og brýnir þau til dáða. Fram kemur að hér skorti enn formlegar verklagsreglur í málaflokknum. Þá er bent á vankanta í baráttu gegn mansali barna. Í skýrslunni kemur fram að þó lögreglan hafi rannsakað 71 mál síðustu ár hafi aðeins verið ákært í einu og sakborningur verið sýknaður. 

Þá kemur fram að Bjarkarhlíð sem er miðstöð fyrir þolendur ofbeldis hafi fengið 25 tilkynningar um mansal á tveimur árum. Tilfellin séu  þó mun fleiri.

Jenný Kristín Valberg teymisstjóri hjá Bjarkarhlíð Bjarkarhlíð segir að heimilið hafi fengið enn fleiri tilkynningar um mögulegt mansal á þessu ári eða 35 talsins . 

„Þetta er mjög umfangsmikið. Ég tel að við séum aðeins að sjá toppinn á ísjakanum. Þetta eru aðallega karlmenn sem lenda í þessu núna og þá vinnumansali. Við sem samfélag þurfum að vera meira vakandi því það getur verið hagnýting í gangi víða,“ segir hún. 

Jenný segir að það þurfi að þjálfa fleiri í að finna þolendur mansals og samstilla störf í málaflokknum.

„Eins og staða er núna er enginn einn einstaklingur sem er í að vinna að mansalsmálum. Ég held að það sé mjög brýnt að það sé gerð áætlun um samhæfingu um hvernig á að taka þessum málum. Þá þarf hún að vera kynnt fyrir öllum aðilum sem koma að þolendum mansals,“ segir Jenný.

Er í bígerð hjá ráðherra

Dómsmálaráðherra sagðist í hádegisfréttum Bylgjunnar ætla að hrinda af stað nýrri aðgerðaráætlun í málaflokknum. Þá þyrftu fleiri ráðuneyti að vinna saman að því að sporna gegn vandanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×