Lífið

Nýfarinn að þora út í fullum skrúða heima á Selfossi

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Siggi Ragnars stendur hér í fullum skrúða fyrir framan rútuna sína.
Siggi Ragnars stendur hér í fullum skrúða fyrir framan rútuna sína. Vísir/einar

Sigurður Ragnarsson, Siggi Ragnars, er einn litríkasti rútubílstjóri landsins - í orðsins fyllstu merkingu. Hann mætir til vinnu í jakkafötum í öllum regnbogans litum á hverjum degi. Við hittum Sigga í Íslandi í dag í gær og fórum með honum á rúntinn.

Siggi ekur skólabíl og sinnir einnig almennum hópferðaakstri. Einkennisklæðnaður hans í akstrinum var fyrst um sinn flísvesti. Hann skipti svo yfir í leðurvesti, á sand af leðurvestum eins og hann segir sjálfur, og loks sneri hann sér alfarið að litríkum jökkum og jakkafötum. Hann mætir aldrei í „venjulegum“ fötum í vinnuna lengur - og er raunar nýbyrjaður að skarta líka fullum skrúða úti meðal fólks í heimabænum, Selfossi.

„Ég fór út í gær og náði mér í sushi. Áttaði mig á því að mig vantar kaffi og fer enn innar í búðina. Og það var bara annar hver maður sem sagði: Vá, rosalega ertu flottur, maður! Þarna var ég innan um allt þetta fólk. Fólk heillast af þessu. Og eins og núna, þegar eldri borgararnir eru komnir í pottinn, þá er mikið skrafað um mig,“ segir Siggi.

„Stundum skil ég ekki sjálfan mig. Ég er feiminn að eðlisfari, var rosalega feiminn sem strákur. En svo í dag, ég hlýt bara að vera með athyglissýki! Ég er svo sjúkur í að láta taka eftir mér, það er nýtt hjá mér. En það er kannski bara út af því hvað ég fæ mikil viðbrögð.“

Brot úr viðtalinu við Sigga má horfa á í spilaranum hér fyrir ofan. Ísland í dag þáttinn í heild má nálgast á Stöð 2+.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.