United hefur unnið 94 prósent leikja sinna með Maguire Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. október 2023 17:01 Harry Maguire er að koma sér inn úr kuldanum hjá Manchester United. Getty/Marco Steinbrenner Þeir sem halda að Harry Maguire hafi verið vandamálið hjá Manchester United ættu að velta aðeins fyrir sér tölfræði yfir sigurleiki liðsins með og án enska landsliðsmiðvarðarins.
Maguire er aftur í náðinni hjá Erik ten Hag, knattspyrnustjóra Manchester United, og liðið er líka byrjað að vinna leiki á ný. Um tíma leit út fyrir það að Maguire yrði seldur í haustglugganum en hann vildi frekar vera áfram og berjast fyrir sæti sínu í liðinu. Harry Maguire hefur verið í byrjunarliðinu í tveimur síðustu deildarleikjum og þeir hafa báðir unnist. United vann 2-1 sigur á Brentford á heimavelli og 2-1 sigur á Sheffield United á útivelli. Hann byrjaði einnig í 3-0 sigri á Crystal Palace í enska deildabikarnum. Þessir þrír sigurleikir eru þeir einu sem hann hefur fengið að byrja á leiktíðinni. Frá því í október í fyrra hefur United unnið fimmtán af sextán leikjum sínum með Maguire í byrjunarliðinu. Það gerir 94 prósent sigurhlutfall. Í þeim 43 leikjum sem hann hefur ekki byrjað á sama tímabili hefur United liðið aðeins unnið 22 leiki eða aðeins 52 prósent leikjanna. Það fylgir reyndar sögunni að í þessum leikjum hefur Maguire ekki verið að spila á móti bestu liðunum í deildinni. View this post on Instagram A post shared by FootballTransfers.com (@transfer_centre)
Enski boltinn Mest lesið „Þetta félag mun aldrei deyja“ Enski boltinn „Við erum of mistækir“ Handbolti Barnalegir og hefðu getað kastað leiknum frá sér Enski boltinn Á stall með Jordan eftir frammistöðu kvöldsins Körfubolti LeBron frá í vikur frekar en daga Körfubolti Atalanta batt enda á sigurgöngu Juventus Fótbolti Benedikt Gunnar kallaður inn í landsliðshópinn Handbolti Danski dómarinn aftur á börum af velli Handbolti „Ljótasta tækling ársins komin í íslenska boltanum“ Íslenski boltinn Trump fékk gulllykil og sagði tollastríðið auka spennu fyrir HM Fótbolti Fleiri fréttir Barnalegir og hefðu getað kastað leiknum frá sér „Þetta félag mun aldrei deyja“ „Opnuðum á möguleikann að tapa leiknum“ David Raya bjargaði stigi á Old Trafford Cucurella sendi Chelsea upp fyrir meistarana Son tryggði Spurs stig úr víti „Vorum að passa okkur og hlupum ekki neitt“ Everton ekki tapað í síðustu átta deildarleikjum sínum Villa blandar sér í Meistaradeildarbaráttuna „Slakir og hægir í fyrri hálfleik“ Jason Daði lagði upp gegn toppliðinu en Benoný haldið á bekknum Liverpool þurfti að hafa fyrir hlutunum gegn botnliðinu Forest tók stórt skref í átt að Meistaradeild Evrópu Finnur sig vel í hörkunni á Englandi: „Orðinn fullorðinn maður núna“ West Ham með dýrara lið en Barcelona og AC Milan Höjlund fékk óvænt hrós þrátt fyrir nítjánda markalausa leikinn í röð Sex leikja bann fyrir brotið á Mateta Segir að Amorim sé að „drukkna“ hjá United Ekki bara Liverpool þríeykið sem er að renna út á samning Unnið ensku, frönsku, þýsku og spænsku meistarana án þess að fá á sig mark Spilaði leik sama dag og hann viðurkenndi að hafa orðið manni að bana Liverpool gæti mætt vængbrotnu liði í úrslitaleiknum á Wembley Oliver kældur eftir Mateta-atvikið Sjáðu frábæran skalla Benonýs Breka Gamla Liverpool stjarnan grét þegar hann rifjaði upp hræðilegan tíma Hvetja stuðningsfólk Man. Utd til að mæta í svörtu því félagið sé „að deyja“ Benoný Breki áfram á skotskónum „Þér að kenna ef við vinnum ekki deildina“ Segir það þjakandi og einmanalegt að vera hjá Man United Nottingham Forest vann aftur eftir vítakeppni Sjá meira