Skoðun

Fæðingar­or­lof í anda jafnaðar­mennsku

Jóhann Páll Jóhannsson skrifar

Hvernig sköpum við réttlátara og sterkara fæðingarorlofskerfi á Íslandi?

Nýlega mælti ég fyrir frumvarpi á Alþingi sem felur í sér eftirfarandi fimm breytingar á lögum um fæðingar- og foreldraorlof:

1. Fyrstu 350 þúsund krónur af viðmiðunartekjum fæðingarorlofsgreiðslna verða óskertar og 80%-reglan mun einvörðungu taka til tekna umfram þá fjárhæð. Þetta er lykilaðgerð til að verja afkomuöryggi foreldra, enda má launalægsta fólkið á Íslandi ekki við 20% tekjuskerðingu þegar það eignast barn.

2. Barnshafandi foreldri öðlast rétt til launaðs meðgönguorlofs allt að fjórum vikum fyrir áætlaðan fæðingardag án þess að sá tími komi til frádráttar þeim tíma sem foreldri á rétt á til launaðs fæðingarorlofs eftir fæðingu. Slíkur réttur er tryggður í Noregi og Danmörku. Að breytingunni hníga sterk heilsufarsleg rök, enda fylgir seinni hluta meðgöngu jafnan mikið álag og veikindaréttur fólks er mismunandi.

3. Fæðingarstyrkir til námsmanna og fólks utan vinnumarkaðar hækka um 50%. Fjárhæðirnar eru smánarlegar í dag og duga hvergi nærri til framfærslu. Að auki er lagt til að námsmenn sem eiga rétt á fæðingarstyrk fái einnig styrk til framfærslu annarra barna undir 18 ára aldri sem nemur einföldum barnalífeyri eins og gildir um lánþega hjá Menntasjóði námsmanna.

4. Þak á fæðingarorlofsgreiðslur hækkar úr 600 þúsund krónum í 800 þúsund krónur á mánuði, en þakið hefur staðið í stað frá því að núgildandi lög tóku gildi árið 2020. Þetta er mikilvægt jafnréttismál og raunar ætti þakið að vera umtalsvert hærra í tekjutengdu fæðingarorlofskerfi.

5. Foreldrar barna fram að grunnskólaaldri öðlast rétt til 20% vinnutímastyttingar með stuðningi úr Fæðingarorlofssjóði í allt að sex mánuði. Greiðslurnar reiknast á sama hátt og greiðslur vegna fæðingarorlofs en í hlutfalli við skerðingu á starfshlutfalli. Í dag er Ísland eftirbátur annarra Evrópuríkja hvað varðar jafnvægi milli vinnu og fjölskyldulífs og raunar er Tyrkland eina Evrópulandið sem kemur verr út að þessu leyti í lífsgæðasamanburði OECD. Með þessari réttarbót yrði stigið mikilvægt skref í átt að fjölskylduvænni vinnumarkaði á Íslandi.

Hér má lesa frumvarpið í heild ásamt greinargerð um tillögurnar og útfærslu þeirra. Best væri ef kerfisbreytingar í þessa veru yrðu lögfestar samhliða frekari lengingu fæðingarorlofs með fjölgun orlofsmánaða sem hvort foreldri á sjálfstæðan rétt til.

Á meðal þeirra sem lýst hafa stuðningi við frumvarpið eru Alþýðusamband Íslands, Kvenréttindafélag Íslands, Félag íslenskra fæðingar- og kvensjúkdómalækna, Ljósmæðrafélag Íslands og samtökin Fyrstu fimm. Ég hlakka til að fylgja málinu eftir á vettvangi velferðarnefndar Alþingis.

Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar, jafnaðarflokks Íslands.




Skoðun

Skoðun

Þorpið

Alina Vilhjálmsdóttir skrifar

Sjá meira


×