Bragðgóð veisla í boði Mandi, Hlöllabáta og Bankans Bistro Veitingafélagið 19. október 2023 08:31 Veitingafélagið opnaði nýjasta Mandi staðinn í Kringlunni á þriðjudag við mjög góðar undirtektir. Allt í allt rekur Veitingafélagið tíu veitingastaði undir merkjum Mandi, Hlöllabáta og Bankans Bistro. Vöxtur Veitingafélagsins hefur verið mikill undanfarið en félagið rekur tíu veitingastaði á höfuðborgarsvæðinu undir þremur vörumerkjum.
Veitingafélagið rekur fjóra Hlöllabáta staði, Bankann Bistro í Mosfellsbæ og í ágúst á síðasta ári bættist Mandi í hópinn en undir Mandi vörumerkinu eru reknir fimm staðir í Reykjavík og í Kópavogi. „Við vorum einmitt að opna nýjasta Mandi staðinn í Kringlunni á þriðjudag,“ segir Jón Friðrik Þorgrímsson, framkvæmdastjóri Veitingafélagsins. „Viðtökurnar voru alveg frábærar og framar öllum vonum. Það er greinilegt að landsmenn kunna að meta Mandi en eftir kaup okkur höfum við fjölgað stöðunum og sett enn meiri kraft í veisluþjónustuna og hafið blómlegt samstarf við Samkaup.“ Jón Friðrik Þorgrímsson er framkvæmdastjóri Veitingafélagsins. Einn af nýju stöðum Mandi er staðsettur í Mathöllinni Hagasmára þar sem Orkan er einnig til húsa. „Við köllum þessa mathöll gjarnan Hraðhöllina því afgreiðslan er svo hröð þar. Veitingafélagið er bæði með Hlöllabáta þar og svo Mandi Express en auk okkar eru þarna líka Acai, Víkingapylsur og Sæta húsið. Þessi mathöll er mjög heppileg fyrir fólk sem er einmitt á hraðferð og vill bragðgóðan mat afgreiddan á nokkrum mínútum. Svo er staðsetningin auðvitað frábær enda er hún mjög miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu.“ Mathöllin í Hagasmára er sérstaklega vel staðsett enda miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Veitingafélagið rekur þar bæði Hlöllabáta og Mandi Express sem afgreiða ljúffengan mat á skömmum tíma. Veisluþjónusta sem nýtur sívaxandi vinsælda Veisluþjónusta Mandi hefur notið vaxandi vinsælda undanfarin ár og heldur bara áfram að vaxa segir Jón. „Úrvalið á matseðlinum er svo fjölbreytt að það er lítið mál að velja rétti sem henta ólíkum hópum. Fólk hefur verið að nýta sér veisluþjónustuna í stórafmæli, fermingar, vinahittinga og við ýmis önnur tilefni og alltaf vekur maturinn mikla lukku. Svo bjóðum við líka upp á fyrirtækjaþjónustu en þá bæði hægt að sækja matinn til okkar eða fá hann sendan.“ Nú fást Mandi vörur í verslunum Samkaupa Eftir kaup Veitingafélagsins á Mandi á síðasta ári hófst samstarf við Samkaup sem rekur Nettó, Iceland, Krambúðina og Kjörbúðina. „Nú geta landsmenn keypt úrval af vörum frá Mandi í þessum verslunum, t.d. pizzur, hummus, falafel, krydd og sósur. Allt í allt eru þetta um 20 vörunúmer sem hafa slegið í gegn, sérstaklega pizzurnar sem aðeins þarf að hita upp í ofni.“ Nú geta landsmenn keypt úrval af spennandi vörum frá Mandi í verslunum Samkaupa: Nettó, Iceland, Krambúðinni og Kjörbúðinni. Veitingahús og félagsheimili í senn Bankinn Bistro, sem er staðsettur í hjarta Mosfellsbæjar, er í senn veitingahús og félagsheimili Mosfellinga segir Jón. „Þar bjóðum við upp á fjölmargar skemmtilega viðburði fyrir ólíka aldurshópa. Þar má nefna barnabíó, stórdansleiki, skákmót, bingó og tónleika. Matseðillinn er mjög fjölbreyttur og inniheldur rétti við allra hæfi. Þar tökum við svo sannarlega vel á móti Mosfellingum og öðrum góðum gestum.“ Bankinn Bistro er staðsettur í hjarta Mosfellsbæjar og er bæði veitingahús og félagsheimili Mosfellinga. Gæði og hröð þjónusta hjá Hlöllabátum Hlöllabáta þekkja landsmenn vel enda landsþekkt vörumerki sem hefur verið starfrækt síðan 1986. „Við opnuðum nýjan stað í Öskjuhlíð, hjá bensínstöð Orkunnar, en hann hefur fengið frábærar viðtökur. Þar er líka auðvelt að stökkva inn og grípa sér uppáhalds bátinn sinn á leið heim úr vinnu eða skóla.“ Nýjasti staðurinn er í Mathöllinni Hagasmára en sá staður býður upp á bílalúgu líkt og staðurinn okkar á Höfðanum. Við leggjum mikið upp úr gæðum og hraða á Hlöllabátum en það tekur aðeins örfáar mínútur að fá bátinn sinn og þjóta út í amstur dagsins.“ Nánari upplýsingar á veitingafelagid.is.
Matur Veitingastaðir Mest lesið Bjarni Ben lét sig ekki vanta á Fjallabak Menning Rekur heimili fyrir unglingsmæður í Kenía fyrir hálfa milljón á mánuði Lífið Vörur sem flugfreyjur kaupa í Bandaríkjunum Lífið Steldu stílnum af heimili Svönu Lovísu Lífið Í skýjunum með að vera fyrstir Tónlist Adolescence: Börn ekki lengur örugg ein inni í herbergi Lífið Stjörnulífið: Eddan, rauðar blúndur og afmæli í París Lífið Hollt veisluhlaðborð sem er lygilega bragðgott og girnilegt Lífið Stefán Einar og Sara Lind selja parhúsið Lífið VÆB-bræður fyrstir á svið í Eurovision Lífið Fleiri fréttir Gott gloss getur gert kraftaverk! Brúnkukremið frá Bondi Sands getur framkallað töfra Áhrifaríkari leið til að auka D-vítamínmagn í líkamanum Tork gaur driftar á ísilögðu stöðuvatni í Jokkmokk „Digest Complete hefur gjörsamlega bjargað mér“ Gjafalisti fermingarbarnsins Allt fyrir ferminguna á einum stað Glæsilegar fermingargjafir sem endast vel Gaf Meat Loaf uppskrift af laxarétti og reif kjaft við Billy Idol „Við köllum þetta töfra náttúrunnar“ Hágæða rúmfatnaður fyrir lúxussvefn Kíkir stundum á mannskapinn og rífur kjaft Tilkynna nafn nýfæddrar dóttur á umhverfisskilti í dag Fáðu að vita strax hvort þú hafir efni á draumaeigninni Merkja uppgjöf í baráttunni og blása til sóknar Gæðadýnur á frábæru verði! Heilsan væri ekki sú sama án mjólkursýrugerlanna frá Probi Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár Hlýleg stemmning og einstök matarupplifun Úrval Útsýn færir landsmönnum sól og gleði í 70 ár Sjá meira