Viðskipti innlent

Kerið selt

Árni Sæberg skrifar
Óskar Magnússon og Ásgeir Baldurs við Kerið.
Óskar Magnússon og Ásgeir Baldurs við Kerið. Aðsend

Arctic Adventures hefur keypt allt hlutafé í Kerfélaginu af Óskari Magnússyni, Ásgeiri Bolla Kristinssyni, Sigurði Gísla Pálmasyni og Jóni Pálmasyni, sem áttu hver sinn fjórðungshlut. Helsta eign Kerfélagsins er Kerið í Grímsnesi sem hefur lengi verið vinsæll áningarstaður ferðamanna, rómað fyrir náttúrufegurð og jarðfræðilega sögu.

Þetta segir í tilkynningu um kaupin frá Arctic Adventures. Ekkert kemur fram um kaupverð. Þar segir að fyrirtækið sé eitt rótgrónasta og öflugasta ferðaþjónustufyrirtæki landsins. Það bjóði upp á fjölbreyttar afþreyingarferðir um land allt þar sem lögð er áherslu á gæði og öryggi. 

Stefna Arctic Adventures sé að bjóða upp á sjálfbæra og vistvæna ferðaþjónustu í sátt við nærsamfélagið. Meðal þeirra ferðamannastaða sem félagið komi að rekstri á megi nefna Raufarhólshelli og Ísgöngin Into the Glacier í Langjökli.

„Kerið er með merkilegustu náttúruperlum landsins. Við teljum að góðir möguleikar séu til staðar til frekari uppbyggingar við svæðið og jafnframt áframhaldandi náttúruverndar. Kerið er í alfaraleið og aðgengilegt til lengri eða skemmri skoðunarferða. Við fögnum því að hafa náð samningum um þessi kaup og hyggjumst vanda þar til uppbyggingar. Arctic Adventures á allt undir þegar kemur að náttúruvernd og því skiptir góð umgengni um náttúruna okkur gríðarlega miklu máli,“ er haft eftir Ásgeiri Baldurs, forstjóra Arctic Adventures.

Áttu Kerið í 23 ár

Í tilkynningu er haft eftir Óskari Magnússyni, stjórnarformanni Kerfélagsins, að allt hafi sinn tíma. Félagið hafi átt kerið 23 ár ljóst væri að komið væri að næsta kafla uppbyggingar á svæðinu.

„Við töldum það heppilegan tíma til að láta staðar numið svo nýir eigendur geti byggt upp til frambúðar eftir sínum hugmyndum. Arctic Adventures er traust og burðugt félag sem mun án efa standa myndarlega að framhaldinu við Kerið. Við fjórmenningarnir höfum á þessum tímamótum ákveðið að stofna sérstakan sjóð sem styrkja mun sjálfbæra náttúruvernd í þeim anda sem reynst hefur farsæl við uppbyggingu Kersins. Við erum búin að eiga einstakt samstarf við bændurna á Miðengi í Grímsnesi og aðra nágranna okkar á svæðinu. Það er eindregin skoðun okkar og reynsla, að starfsemi af þessu tagi sé best fyrir komið með öflugri þátttöku heimamanna eins og við höfum borið gæfu til að njóta.“


Tengdar fréttir

Eigendur Kersins hagnast um nærri 60 milljónir

Hagnaður Kerfélagsins, eiganda Kersins í Grímsnesi, var ríflega 58 milljónir króna í fyrra og næstum tvöfaldaðist frá árinu 2016 þegar hann var 30 milljónir.

Tryggja beri öryggi við Kerið

"Sveitarstjórn lýsir yfir miklum áhyggjum vegna umferðar­öryggismála við Kerið þar sem umferð hefur aukist verulega,“ segir í bókun sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps.

Rukkuðu 70 milljónir í Kerið

Kerfélagið hagnaðist um 30 milljónir króna í fyrra á því að rukka aðgangseyri í Grímsnesi. Um 150 þúsund ferðamenn heimsóttu Kerið og aðrir landeigendur eru byrjaðir eða í startholunum með að hefja gjaldtöku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×