Innlent

Á­kærður fyrir að káfa á konu í sundi

Jón Þór Stefánsson skrifar
Atvikið átti sér stað í sundlaug. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki með beinum hætti.
Atvikið átti sér stað í sundlaug. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki með beinum hætti. Vísir/Vilhelm

Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann fyrir kynferðislega áreitni sem átti sér stað í sundlaug.

Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Vestfjarða.

Manninum er gefið að sök að hafa áreitt konu kynferðislega í heitum potti í september í fyrra. Hann hafi strokið bert hold hennar við rass, og síðan strokið henni utan klæða við mjöðm rass og brjóstasvæði.

Konan krefst tveggja milljóna króna í skaða- og miskabætur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×